Að rjúfa vopna­hlé – 300 myrt á svip­stundu

Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir og Yousef Tamimi skrifa

2025-03-18 11:01

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Í nótt ákvað Ísrael herða sókn sína og endanlega gera út um friðarsamkomulagið sem var í gildi frá 19. janúar síðastliðinn. Ísraelsmenn myrtu í nótt yfir 330 einstaklinga (sem er eins og íbúarfjöldinn á Flúðum) með sprengjuárásum, flest látinna eru konur og börn en árásunum var beint á íbúðarhús, skóla og opinberar byggingar sem höfðu verið breytt í flóttamannabúðir. Eftir tvo mánuði af friði hefur Ísrael því ákveðið hefja aftur sína stórsókn á Gaza. Ástæðan fyrir því við skrifum friði innan gæsalappa er þrátt fyrir vopnahléð hafi verið í gildi í tvo mánuði hefur Ísrael samt náð drepa að minnsta kosti 150 Palestínumenn á Gaza á friðartímanum.

Vopnahléð sem samið var, sem varla var hægt kalla vopnahlé vegna sífelldra brota Ísraela á samningnum, átti fela í sér Ísrael drægi sig að hluta til baka frá Gaza en þess í stað hafa þeir lagt áherslu á eyðileggja, sprengja og myrða Palestínumenn á Vesturbakkanum á friðartímanum. Þar hafa yfir 90 Palestínumenn hafa verið myrtir, þar af minnst 18 börn, og yfir 40 þúsund eru á flótta á Vesturbakkanum. Sem þýðir á friðartímanum hefur Ísrael myrt yfir 240 palestínumenn.

Blóðugar árásir næturinnar á Gaza koma svo í kjölfar þess Ísrael hefur markvisst verið svelta börn og fullorðna á svæðinu auk þess loka á rafmagn og á allan innflutning á neyðaraðstoð, vatn, lyf og aðrar nauðsynjavörur. Staðan á Gaza er alvarlegri en við getum ímyndað okkur og sprengir Ísrael sveltandi börn sem hírast í tjöldum því heimili þeirra voru lögð í rúst. Þvingaðir brottflutningar, áform um þjóðernishreinsanir, þjóðarmorð og landtöku á Gaza eru rædd fyrir opnum dyrum í Ísrael og af Bandaríkjaforseta. Yfirlýst markmið Ísraels er útrýma Palestínu.

Árásirnar eru gerðar með fullum stuðning Bandaríkjanna, enda voru þau fljót kenna Hamas um brjóta vopnahléð. Hinsvegar þegar litið er á tímalínuna þá stenst það enga skoðun. Ísrael undirritaði vopnahlésamning í janúar sem fól í sér þrjú stig og á sama tíma og Hamas hefur staðið við vopnahléið þá hefur Ísrael neitað fylgja því, haldið áfram myrða Palestínumenn, svelta og algjörlega hafna því standa við skilmála vopnahlésins sem felur í sér yfirfærslu á stig tvö og síðar meir á stig þrjú.

Ísrael með stuðning Bandaríkjana ætla ekki virða rétt Palestínumann til lífs og mannréttinda. Ísrael með stuðning Bandaríkjana ætla útrýma Palestínu og tryggja yfirráð og sín réttindi á svæðinu. Stríðsglæpirnir halda áfram án aðgerða alþjóðasamfélagsins og alþjóðalagakerfið molnar á meðan. Ísrael hefur hunsað allar ályktanir , alla bráðabirgðaúrskurði alþjóðadómstólsins og öll áköll alþjóðasamfélagsins. Í vikunni gaf Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna út skýrslu sem sýnir Ísrael notar kynbundið ofbeldi og kynferðisofbeldi af ásetningi til kúga palestínsku þjóðina, og kemst skýrslan þeirri niðurstöðu Ísrael hafi gerist sekt um stríðsglæpi, glæpi gegn mannkyni og þjóðarmorð. Ísland á sæti í Mannréttindaráði og ber skylda til fylgja niðurstöðum skýrslunnar eftir með aðgerðum.

Það er með ólíkindum horfa á alþjóðasamfélagið jafnt lamað og það er. Þrátt fyrir handtökubeiðni á Netanyahu, skýrslur Sameinuðu Þjóðanna og opinberar yfirlýsingar Bandaríkjana og Ísrael um þjóðernishreinsa Palestínu, þá gerist ekkert!

Ísrael er í gjöreyðingarherferð og það eina sem getur stöðvað það eru skýrar aðgerðir alþjóðasamfélagsins. Orðin ein munu ekki stöðva þjóðarmorðið.

lokum því spyrja, ætla Þorgerður Katrín og Kristrún Frostadóttir standa aðgerðalausar hjá meðan Ísrael myrðir saklausa palestínska borgara á hrottalegan hátt, eða ætla þær loksins standa með mannréttindum og berjast fyrir því Ísrael verður látið taka ábyrgð á þeim grimmdarverkum sem framkvæmd eru daglega? Ætlar ríkisstjórn Íslands loksins taka málið alvarlega, eins og meirihluti þjóðarinnar vill og kaus hana meðal annars til? Ætlar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra loks eiga frumkvæði samtali við Norðurlöndin um viðskiptaþvinganir á Ísrael, eins og hún sjálf átti hugmynd áður en hún varð forsætisráðherra? Eða ætlar hún vera þekkt sem forsætisráðherrann sem sat hjá á meðan börn voru sprengd í tætlur?

Salvör er sviðshöfundur og Yousef er hjúkrunarfræðingur.

Nafnalisti

  • Kristrún Frostadóttirformaður
  • Netanyahufórnarlamb pólitískra nornaveiða
  • Vopnahléðliður í tilraunum stórveldanna til að viðhalda því hléi á átökum Sýrlandsstjórnar og uppreisnarmanna, annarra en Al Nusra og Íslamska ríkisins, sem samið var um í febrúar síðastliðnum
  • Þorgerður Katrínformaður Viðreisnar

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 712 eindir í 29 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 24 málsgreinar eða 82,8%.
  • Margræðnistuðull var 1,62.