Barnamálaráðherra eignaðist barn með barnungum pilti
Aðalsteinn Kjartansson
2025-03-20 18:11
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Ásthildur Lóa Þórsdóttir barnamálaráðherra átti í ástarsambandi með fimmtán ára pilti og eignaðist með honum barn. Sambandið hófst þegar hún var sjálf 22 ára, en barnið eignuðust þau ári síðar. Þetta kemur fram í frétt RÚV nú í kvöld.
Þar kemur fram að maðurinn, Eiríkur Ásmundsson, hafi staðfest við fréttastofu að þau hafi átt í ástarsambandi. Það hafi hafist fljótlega eftir að hann leitaði í trúarsöfnuðinn Trú og líf, þar sem hún leiddi unglingastarf.
Barnið hafi komið undir fljótlega eftir kynni þeirra en það kom í heiminn þegar hann var orðinn sextán ára gamall, samkvæmt frétt RÚV. Ásthildur Lóa gaf RÚV ekki kost á viðtali.
Heimildin hefur hvorki náð í Ásthildi Lóu né Ingu Sæland, formann Flokks fólksins.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú færð tvær fríar áskriftargreinar í mánuði. Þú hefur síðan val um að styrkja óháða blaðamennsku með áskrift á hagstæðu verði, frá aðeins 3.990 krónum á mánuði.
Innskrá með Facebook Innskrá með notanda Stofna aðgang
Leiðbeiningar má nálgast á heimildin.is/leidbeiningar.
Nafnalisti
- Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
- Eiríkur Ásmundsson
- Facebook Innskrá
- Inga Sælandformaður
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 175 eindir í 13 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 12 málsgreinar eða 92,3%.
- Margræðnistuðull var 1,55.