EfnahagsmálStjórnmál

Að standa við stóru orðin

Guðmundur Ari Sigurjónsson

2025-03-31 08:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Frá því Kristrún Frostadóttir tók við formennsku í Samfylkingunni árið 2022 hefur Samfylkingin undir hennar forystu átt í virku samtali við fólkið og fyrirtækin í landinu og hlustað á hvað það er sem skiptir fólkið í landinu mestu máli.

Úr þessum samtölum kom fram skýr krafa um árangur þegar kemur uppbyggingu innviða og mikil gremja gagnvart því stjórnvöld hafi ekki sinnt uppbyggingu og viðhaldi á orkuinnviðum, vegunum okkar, menntakerfinu og heilbrigðisstofnunum. Þessi krafa var hvað háværust á landsbyggðinni þó hana mætti heyra um land allt.

Samfylkingin tók þessum skilaboðum alvarlega og mótaði í virku samráði við landsmenn, verkalýðsfélögin og sérfræðinga þau áherslumál sem flokkurinn kynnti fyrir kosningar. Þessi áherslumál kjarna í því Samfylkingin ætlar tryggja öryggi og afkomu landsmanna og fyrirtækja. Fyrsta skrefið var stjórn á efnahagsmálunum, niður verðbólgu og vöxtum og skila hallalausum fjárlögum. Næsta skrefið er svo tryggja öryggi landsmanna og fyrirtækja þegar kemur samgöngum, löggæslu, traustum orkuinnviðum, félagslegu öryggi og sterkt mennta- og velferðarkerfi.

Við höfum séð á fyrstu hundrað dögum ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins unnið er eftir skýru plani og allt er samkvæmt áætlun. Það þyrfti lengri grein en þessa til telja öll þau framfaraverkefni sem ríkisstjórnin hefur ýtt úr vör en stóra myndin er verðbólga og vextir eru á niðurleið og búið er leggja fram fjármálastefnu sem gerir ráð fyrir hallalausum fjárlögum fyrr en áætlanir gerðu ráð fyrir. Á sama tíma er verið ráðast í mikilvægar fjárfestingar þegar kemur orkuöflun og samgöngumálum og búið er höggva á stóra hnúta þegar kemur þjónustu við börn, ungmenni og eldri borgara.

Eitt af því sem við í Samfylkingunni höfum verið heiðarleg með í okkar samtölum við þjóðina er það fjárfestingar og efling samfélagslegra innviða kostar peninga og við höfum ekki viljað lofa útgjöldum án þess það skýrt hvernig við munum afla tekna fyrir þeim. Það er ástæðan fyrir því eitt af fyrstu verkefnum ríkisstjórnarinnar var setja af stað hagræðingarverkefni í samráði við landsmenn og verið tryggja fyrirtæki greiði eðlilegan arð af nýtingu sameiginlegra auðlinda landsmanna. Alveg eins og við boðuðum fyrir kosningar.

Þessar aðgerðir skapa svigrúm fyrir fjárfestingar í fólki og innviðum sem munu skila sér margfalt til baka í formi aukinna lífsgæða fólks út um allt land og verðmætasköpunar fyrir þjóðarbúið og fyrirtækin í landinu.

Höfundur er þingflokksformaður Samfylkingarinnar.

Nafnalisti

  • Kristrún Frostadóttirformaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 424 eindir í 15 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 13 málsgreinar eða 86,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,53.