Rússar sagðir vilja draga við­ræður á langinn

Samúel Karl Ólason

2025-03-24 21:40

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Bandarískir og rússneskir erindrekar luku í kvöld fundi um mögulegt vopnahlé á Svartahafi milli Rússa og Úkraínumanna. Ráðamenn í Bandaríkjunum vonast til þess viðræðurnar geti leitt til frekari viðræðna um frið í Úkraínu.

Rússneskir ráðamenn eru sagðir vilja draga viðræðurnar á langinn.

Á meðan á fundinum stóð í Sádi-Arabíu, þar sem úkraínsk sendinefnd hefur einnig átt í viðræðum við Bandaríkjamenn, skutu Rússar öflugri skotflaug skóla og sjúkrahúsi í Súmí í Úkraínu. Að minnsta kosti 74 særðust í árásinni.

Sjö létu lífið í drónaárásum síðust nætur.

Utanríkisráðherra Úkraínu segir í stað þess senda út innihaldslausar yfirlýsingar um frið þurfi Rússar hætta árásum á óbreytta borgara í Úkraínu.

Enn sem komið er liggur ekki fyrir hvort fundir dagsins og gærdagsins skiluðu árangri. Heimildarmaður Reuters í Rússlandi segir til standi senda út yfirlýsingu á morgun. Þá hafa rússneskir miðlar eftir talsmanni Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, ekki hafi verið skrifað undir neitt í dag.

Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segist eiga von á frekari upplýsingum um viðræður dagsins. Friður nauðsynlegur Úkraínu, Evrópu, Bandaríkjunum og heiminum öllum. Hann þurfi þó vera varanlegur og eins og staðan er núna segir Selenskí Rússa þá einu sem standa í vegi hans.

Hann segir til koma á friði þurfi auka þrýstinginn á Rússa og það með refsiaðgerðum og frekari stuðningi við Úkraínumenn, auk alþjóðlegrar samvinnu.

Today, we held meetings focused on diplomatic efforts. I spoke with Rustem Umerov. Yesterday there was a meeting with the U.S. team. Today, U.S. representatives spoke with the war team-that is, with representatives of Russia. After that, another meeting took place between the pic.twitter.com/ZNNtU 86 ZLG]]-Volodymyr Zelenskyy/Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) March 24, 2025

Pútín hafnaði nýverið tillögu Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, um almennt þrjátíu daga vopnahlé í Úkraínu. Fyrir á liggja samkomulag um stöðva árásir á orkuinnviði í Úkraínu og árásir á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi.

Árásir hafa þó haldið áfram.

Sjá einnig: Segir orkuinnviðasamkomulagið enn í gildi þrátt fyrir stöðugar árásir

Eins og áður segir hafa viðræður síðustu daga snúist um vopnahlé á Svartahafi en tiltölulega lítið hefur gengið þar á að undanförnu. Rússar hafa flutt sín herskip í var og siglingar til og frá Úkraínu eru næstum því jafn tíðar og þær voru fyrir innrás, samkvæmt frétt Reuters.

Ráðamenn í Evrópu draga í efa Pútín hafi áhuga á láta af kröfum sínum einhverju leyti.

Sjá einnig: Segist opinn fyrir vopnahléi en hafnar tillögu Trumps

Meðal þeirra krafna sem ráðamenn í Rússlandi hafa opinberað vegna innrásarinnar í Úkraínu er fjögur héruð Úkraínu, sem þeir stjórna ekki fullu, auk Krímskaga, Úkraína afvopnist, fái ekki inngöngu í NATO og jafnvel það NATO hörfi alfarið frá Austur-Evrópu.

Héruðin fjögur eru Luhansk og Dónetsk, sem Rússar stjórna stórum hluta, og Kherson og Saporisíja, sem Rússar stjórna mun smærri hluta af.

Kröfurnar fela í raun í sér uppgjöf Úkraínu og varnarleysi í framtíðinni.

Vilja leggja meira undir sig

Moscow Times hefur eftir heimildarmönnum sínum innan stjórnsýslu Rússlands þar á vilji menn draga úr viðræðum og reyna nota tímann til leggja undir sig stærri hluta af Úkraínu.

Vonast til þess Trump muni ekki reyna halda aftur af þeim og hann gæti jafnvel krafist þess Úkraínumenn hörfi frá þeim héruðum sem Rússar sækjast eftir. Einn heimildarmaður miðilsins sagði Pútín ekki geta látið af því markmiði sínu stjórna þessum héruðum eftir hafa gert þau rússnesku svæði samkvæmt stjórnarskrá ríkisins.

Einnig komi til grein sækja fram annarsstaðar í Úkraínu og reyna nota það svæði í viðræðum um Kherson og Saporisíja sérstaklega.

Nafnalisti

  • AfterA Love Story
  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Khersonúkraínsk borg
  • Luhanskúkraínskt hérað
  • Marchaðstoðarmaður Rangnick
  • Moscow Timesrússneskur miðill
  • Russiabók
  • Rustem Umerovnýskipaður varnarmálaráðherra Úkraínu
  • Saporisíjaborg
  • Súmíborg
  • Todaysjónvarpsþáttur
  • Vladimírs Pútínforseti Rússlands
  • Vólódímír Selenskíforseti Úkraínu
  • Volodymyr Zelenskyyforseti Úkraínu
  • Yesterdaykvikmynd
  • Володимир Зеленський

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 652 eindir í 35 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 28 málsgreinar eða 80,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,65.