Jón Haukur ráðinn svæðis­stjóri Ceedr

Árni Sæberg

2025-04-02 15:06

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Jón Haukur Baldvinsson hefur verið ráðinn í nýja stöðu svæðisstjóra fyrir Ísland hjá stafrænu markaðsstofunni Ceedr.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir Jón Haukur hafi mikla reynslu í sölu- og markaðsmálum á Íslandi og í Bandaríkjunum og hafi verið í framlínu markaðsmála fyrir Icelandair á Íslandi og í Bandaríkjunum, Byko, Marel, Icelandic Glacial í Bandaríkjunum og Coca-Cola á Íslandi. Jón Haukur með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og BA gráðu í auglýsinga- og markaðsfræði frá London College of Communications.

Ceedr hinn stafræni armur Pipar\TBWA sem sérhæfi sig í notkun stafrænna leiða í sölu- og markaðssetningu fyrir fyrirtæki þvert yfir Norðurlöndin og í Evrópu. Einnig Ceedr vottaður þjónustuaðili Hubspot og aðstoði fyrirtæki við uppsetningu og innleiðingu á Hubspot og hanni jafnframt vefsíður inn í það kerfi.

Jón Haukur er mikill fengur fyrir Ceedr því hann er reynslubolti úr okkar geira. Þekking og reynsla hans nýtist bæði viðskiptavinum Ceedr og Pipar\TBWA gríðarlega vel og er hann öflug viðbót í stjórnendateymi okkar, er haft eftir Hreggviði S. Magnússyni, framkvæmdastjóra Ceedr um ráðninguna.

tækifæri til taka þátt í þeirri vegferð sem Ceedr er á þykir mér virkilega spennandi. Stofan hefur mjög sterkan grunn og hjá henni starfar fjölbreyttur hópur starfsfólks sem kemur víðsvegar úr heiminum og býr yfir mikilli þekkingu. Umsvifin eru aukast jafnt og þétt hér á landi og á hinum Norðurlöndunum og það verður spennandi tækifæri til þess leggja mín lóð á vogarskálarnar, er haft eftir Jóni Hauki.

Nafnalisti

  • Coca-Coladrykkjarvöruframleiðandi
  • Hreggviður S. Magnússonleiðtogi í stafrænni markaðssetningu hjá The Engine
  • Icelandic Glacialvörumerki
  • Jón Haukur Baldvinssonrekstrarstjóri SSP á Íslandi
  • London College of Communications
  • Marelíslenskt fyrirtæki
  • TBWAalþjóðleg auglýsingakeðja

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 250 eindir í 10 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 10 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,79.