Jón Haukur til Ceedr

Ritstjórn mbl.is

2025-04-02 14:57

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Stafræna markaðsstofan Ceedr hefur ráðið Jón Hauk Baldvinsson sem svæðisstjóra fyrir Ísland. Í fréttatilkynningu segir hann hafi mikla reynslu í sölu- og markaðsmálum á Íslandi og í Bandaríkjunum og hafi verið í framlínu markaðsmála fyrir Icelandair á Íslandi og í Bandaríkjunum. Einnig hafi hann starfað hjá Byko, Marel, Icelandic Glacial í Bandaríkjunum og Coca-Cola á Íslandi.

Jón Haukur er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og BA gráðu í auglýsinga- og markaðsfræði frá London College of Communications.

Í tilkynningunni segir einnig Ceedr hinn stafræni armur auglýsingastofunnar Pipar\TBWA sem sérhæfir sig í notkun stafrænna leiða í sölu- og markaðssetningu fyrir fyrirtæki þvert yfir Norðurlöndin og í Evrópu. Þá segir Ceedr vottaður þjónustuaðili Hubspot og aðstoði fyrirtæki við uppsetningu og innleiðingu á Hubspot og hanni jafnframt vefsíður inn í það kerfi.

Reynslubolti úr geiranum

Jón Haukur er mikill fengur fyrir Ceedr því hann er reynslubolti úr okkar geira. Þekking og reynsla hans nýtist bæði viðskiptavinum Ceedr og Pipar\TBWA gríðarlega vel og er hann öflug viðbót í stjórnendateymi okkar, segir Hreggviður S. Magnússon, framkvæmdastjóri Ceedr um ráðninguna, í tilkynningunni.

tækifæri til taka þátt í þeirri vegferð sem Ceedr er á þykir mér virkilega spennandi. Stofan hefur mjög sterkan grunn og hjá henni starfar fjölbreyttur hópur starfsfólks sem kemur víðsvegar úr heiminum og býr yfir mikilli þekkingu. Umsvifin eru aukast jafnt og þétt hér á landi og á hinum Norðurlöndunum og það verður spennandi tækifæri til þess leggja mín lóð á vogarskálarnar, segir Jón Haukur ennfremur í tilkynningunni.

Hjá Ceedr starfa á þriðja tug starfsmanna sem þjónusta um 100 fyrirtæki.

Nafnalisti

  • Coca-Coladrykkjarvöruframleiðandi
  • Hreggviður S. Magnússonleiðtogi í stafrænni markaðssetningu hjá The Engine
  • Icelandic Glacialvörumerki
  • Jón Haukur Baldvinssonrekstrarstjóri SSP á Íslandi
  • London College of Communications
  • Marelíslenskt fyrirtæki
  • TBWAalþjóðleg auglýsingakeðja

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 275 eindir í 13 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 13 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,74.