Vilja stórauka viðskiptin við Ísland

Ritstjórn mbl.is

2025-04-02 15:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

R. Ravindra, nýr sendiherra Indlands á Íslandi, segist vongóður um senn hefjist beint flug frá Íslandi til Indlands. Þá sér hann fyrir sér indverskum ferðamönnum muni fjölga mikið á Íslandi og viðskipti ríkjanna tífaldast í náinni framtíð.

Indland og EFTA-löndinSviss, Ísland, Noregur og Liechtensteinundirrituðu fríverslunarsamning (TEPA) 10. mars 2024.

Gríðarstór markaður

Sendiherrann segir nýjan viðskiptasamning auðvelda Indverjum hasla sér völl á Íslandi og það sama gildi um Íslendinga á Indlandi.

Þetta er mikilvægur samningur. Með honum mun Indland betri aðgang þessum fjórum mörkuðum og öfugt. Indland er gríðarstór markaður með 1,4 milljarða íbúa. Þannig möguleikarnir eru gríðarlegir. Ég er nokkuð viss um eftir nokkur ár muni útflutningur Íslands til Indlands og innflutningur frá Indlandi til Íslands líklega tífaldast. Ég geri mér vonir um það, segir sendiherrann.

Njóta fulls tollfrelsis

Á vef utanríkisráðuneytisins segir samningurinn bæti markaðskjör á öllum helstu útflutningsvörum Íslands til Indlands. Frá gildistöku hans muni sjávarafurðir og helstu iðnaðarvörur sem Ísland flytur út ýmist njóta fulls tollfrelsis eða umtalsverðrar tollalækkunar. Þrátt fyrir miklar takmarkanir á innflutningi landbúnaðarafurða til Indlands muni samningurinn tryggja Íslandi tollfríðindi fyrir lambakjöt, vörur úr sjávarþara, drykkjarvatn og óáfenga drykki svo eitthvað nefnt.

Ítarlegt viðtal við sendiherrann er finna í ViðskiptaMogganum í dag.

Nafnalisti

  • ViðskiptaMogganummiðvikudagur

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 233 eindir í 16 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 14 málsgreinar eða 87,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,50.