Nýr mennta­mála­ráð­herra og strákarnir okkar á Spáni

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir

2025-03-23 11:47

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Guðmundur Ingi Kristinsson er sagður taka við embætti mennta- og barnamálaráðherra af Ásthildi Lóu Þórsdóttur á ríkisráðsfundi klukkan 15:15. Farið verður yfir stöðuna með stjórnmálafræðingi í hádegisfréttum Bylgjunnar klukkan tólf.

Ekki hefur verið farið fram á gæsluvarðhald yfir neinum í tengslum við átök á Ingólfstorgi á föstudagskvöld. Enn er verið kanna hvort tvö önnur mál tengist og voru þrettán í heildina handteknir.

Helsti stjórnarandstæðingur Tyrklandsforseta hefur verið handtekinn og ákærður fyrir spillingu. Mótmælt hefur verið undanfarnar fjórar nætur en mótmælin eru sögð þau umfangsmestu í áratug.

Karlalandsliðið í knattspyrnu mætir Kósovó á Spáni eftir tap á fimmtudagskvöld. Leikurinn er sögulegur að því leyti leikurinn er fyrsti heimaleikur Íslands á erlendri grundu.

Þetta og margt fleira í hádegisfréttum á Bylgjunni klukkan tólf.

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Guðmundur Ingi Kristinssonþingmaður Flokks fólksins

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 121 eind í 9 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 9 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,54.