Hér bjó fólk í 2.000 ár – Dag einn hvarf það á braut

Pressan

2025-03-31 18:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Eyjaþyrpingin St Kilda við Skotland er kannski ekki kjörin til búsetu en samt sem áður bjó fólk þar í um 2.000 ár. Sagt hefur verið það hafi verið mestu hörkutól þess tíma sem hófu þar búsetu enda lífsskilyrðin allt annað en auðveld. Eyjurnar eru í Norður-Atlantshafi, um 60 km frá meginlandi Skotlands.

Lítill samgangur var við restina af Skotlandi og hið daglega líf snerist aðallega um lifa af. Steinhús voru byggð á stærstu eyjunni, Hirta, í þorpinu Village Bay en aðeins var búið á Hirta. Á hverjum morgni héldu allir fullorðnir karlmenn á eyjunni fund. Þar ræddu þeir verkefni dagsins og skiptu þeim á milli sín. Enginn eiginlegur leiðtogi var á eyjunni og allir höfðu málfrelsi og tillögurétt á þessum morgunfundum.

T. Steel, sagnfræðingur og rithöfundur, skrifaði bókina Life and Death of St Kilda 1988. Í henni segir hann oft hafi verið heitar umræður á þessum fundum en þær hafi aldrei leitt til langvarandi illdeilna meðal eyjaskeggja. Á þeim 2.000 árum sem eyjan var í byggð var ekki eitt einasta alvarlega afbrot skráð þar.

Erfið lífsskilyrði

Samvinna var grundvöllur þess fólk gæti lifað af á eyjunni. Þrátt fyrir þær séu langt úti í hafi voru fiskveiðar ekki hluti af daglegu lífi íbúanna. Veðrið var og er oft mjög slæmt á þessum slóðum og hafnaraðstaða var lítil sem engin og fiskveiðar því ekki einfaldar. Íbúarnir nærðust aðallega á fuglum og eggjum, og kornmeti og kartöflum sem þeir ræktuðu. Auk þess voru þeir með sauðfé en það tilheyrði eiganda eyjanna, skosku MacLeod -fjölskyldunni. Eyjaskeggjar greiddu fjölskyldunni leigu, aðallega fugla, egg og dún.

Minjar, sem sýna búið var á eyjunum á bronsöld, hafa fundist en fyrstu skriflegu heimildirnar fyrir því eru frá því í um 1300. Fyrsta nákvæma skýrslan um St Kilda var skrifuð 1549 af prestinum Donald Munro. Hann skrifaði eyjaskeggjar væru fátækt og einfalt fólk sem vissi lítið um trúarbrögð.

Aukin samskipti við umheiminn

Eftir því sem árin liðu jukust samskiptin við Skotland þrátt fyrir samskiptaleiðirnar væru erfiðar. Sjóleiðin var erfið, oft úfinn sjór og ölduhæðin oft 12 til 15 metrar. Lengi vel var eina samskiptaleið eyjaskeggja við umheiminn kveikja bál í þeirri von skip, á leið fram hjá, myndi sjá það.

Á nítjándu öld jukust samskiptin við umheiminn og eyjaskeggjar urðu sífellt háðari innfluttum mat og öðru frá meginlandi Skotlands. 1876 var matarskortur á eyjunni og í von um skjóta aðstoð var tekið upp nýtt samskiptakerfi sem var nefnt mailboat (póstbátur). Bréfi var þá komið fyrir í flösku eða tinboxi sem var sett í trékassa sem var festur við uppblásna kindablöðru sem gegndi hlutverki flotholts. Þessu var síðan kastað í sjóinn í þeirri von þetta ræki landi í Skotlandi. En sjórinn var erfiður viðureignar og margir af þessum póstbátum fundust síðar við vesturströnd Noregs.

Á tuttugustu öldinni settu sjúkdómar og brottflutningur íbúa mark sitt á eyjuna. Þegar fyrri heimsstyrjöldin braust út 1914 var dregið mjög úr samskiptum og viðskiptum við St Kilda.

Þann 29. ágúst 1930 rann svo lokadagur byggðar á eyjunni upp en þá voru síðustu 36 íbúar eyjunnar fluttir til meginlands Skotlands. Síðan hefur ekki verið föst búseta á eyjunum en þær eru stundum notaðar til æfinga af breska hernum. Fuglafræðingar sækja einnig þangað enda einstakt fuglalíf. St Kilda er á heimsminjaskrá UNESCO.

2016 lést Rachel Johnson, 93 ára aldri, en hún var síðasti íbúi St Kilda sem lést. The Guardian skýrði frá þessu.

Nafnalisti

  • Donald Munroprestur
  • Life and Death of
  • Rachel Johnsonsystir forsætisráðherra
  • Steeleitt þekktasta fyrirtæki Bandaríkjanna og næststærsti stálframleiðandi landsins
  • Village Bayþorp

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 614 eindir í 38 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 38 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,58.