Íþróttir

Með skýr skila­boð til Arons og Gylfa: Hættið á meðan þið getið gert það sjálfir

Sindri Sverrisson

2025-03-23 22:16

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Þú hefur bara visst mikinn tíma til ákveða hvenær þú hættir í landsliðinu. Á endanum verður það bara ákveðið fyrir þig, sagði Lárus Orri Sigurðsson þegar hann fór yfir frammistöðu Arons Einars Gunnarssonar gegn Kósovó. Hann hvatti Aron og fleiri af gullkynslóðinni til hætta sjálfir áður en það yrði of seint.

Lárus Orri talaði hreint út en af virðingu varðandi gamla landsliðsfyrirliðann í umræðum á Stöð 2 Sport í gærkvöld, eftir 52 tap Íslands í umspili við Kósovó í Þjóðadeildinni í fótbolta, en hægt er sjá brot af þeim í spilaranum hér að neðan.

Þrátt fyrir vera ekki lengur fyrirliði þá fékk Aron stórt hlutverk í fyrstu leikjum Íslands undir stjórn Arnars Gunnlaugssonareinvíginu við Kósovó. Hann lék 90 mínútur í fyrri leiknum á fimmtudag og átti svo martraðarinnkomu í gær þegar hann kom inn á sem varamaður í upphafi seinni hálfleiks en fékk rautt spjald rúmum tuttugu mínútum síðar.

Passið ykkur strákar

Þessi gluggi hjá Aroni var ekki góður. Hann var ekki góður í síðasta leik og ekki góður í þessum leik heldur.

Mér finnst svolítið erfitt tala um þetta, hreinlega, því mér finnst erfitt sjá Aron í þessari stöðu sem hann er í. Oft á tímum var þetta mjög erfitt fyrir hann í síðasta leik, sérstaklega í seinni hálfleik, og í þessum leik átti hann mjög erfitt uppdráttar. Hann var búinn vera inn á í sirka 15 mínútur og þá var eins og hann væri gjörsamlega búinn á því, sagði Lárus Orri og hélt áfram:

Ég segi það, ekki bara við Aron heldur alla þessa gullaldarstráka sem eru spila, passið ykkur strákar: Leave the game before the game leaves you. Þú hefur bara visst mikinn tíma til ákveða hvenær þú hættir í landsliðinu. Á endanum verður það bara ákveðið fyrir þig.

Skil þeir vilji hanga á þessu

Aron Einar hefur leikið 106 A-landsleiki og er næstleikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi, á eftir Birki Bjarnasyni sem leikið hefur 113 A-landsleiki. Kjartan Atli Kjartansson benti á óumdeilt væri Aron væri einn besti landsliðsmaður sem Ísland hefur átt en þeir tímar virðast einfaldlega liðnir.

Lárus, sem sjálfur lék lengi með landsliðinu, hefur fullan skilning á því erfitt hætta spila fyrir Ísland.

Ég er Þórsari, hann er Þórsari, og auðvitað er pínu vont hlusta á átta mínútna viðtal við Aron Einar þar sem hann er réttlæta af hverju hann er í landsliðshópnum. Þetta er okkar Fyrirliði, með stóru F-i. Ég veit þetta er ógeðslega erfitt. Ef ég mætti gera einn hlut aftur frá mínum ferli þá er það standa þarna í einn þjóðsöng. Ég skil því þeir vilji hanga á þessu. Það er ógeðslega erfitt finna rétta punktinn til segja hingað og ekki lengra. En ég held það kannski kominn tími til menn horfi vel í spegilinn og taki ákvörðun um framtíðina, sagði Lárus Orri.

Hann tók undir kannski væri frekar framtíð fyrir Aron sem miðjumaður í landsliðinu en ekki sem miðvörður líkt og gegn Kósovó.

Snúist ekki um aldur heldur hvar menn séu staddir á ferlinum

Aron kann miðjustöðuna. Hann yrði mikið betri í standa þarna á miðjunni, gæti kallað leikmenn til og stýrt þeim betur í kringum sig. Hann kann þessa stöðu [sem miðvörður] ekki eins vel og á fullt í fangi með sjálfan sig þar, hvað þá reyna hafa áhrif á menn í kringum sig.

Lárus hvetur menn hins vegar til hugsa sig vandlega um varðandi það hvernig þeir vilji kveðja landsliðið:

Tölum ekki bara um Aron. Líka Gylfa. Birkir Bjarna og Jón Daði hafa verið með tilkall til koma inn í landsliðið. Menn verða vita sinn tíma. Við erum ekki tala um aldur hérna. 37 ára leikmenn geta verið í fullri sveiflu. Þetta snýst bara um hvar menn eru staddir á sínum ferli. Eins og staðan er hjá þessum mönnum í dag þá ég ekki þeir eigi stöðu í landsliðinu.

Nafnalisti

  • Arnar Gunnlaugssonþjálfari
  • Aron Einar GunnarssonFyrirliði
  • Birkir Bjarnaóhultur-Tæplega 700 látnir á svæðinu
  • Birkir Bjarnasonlandsliðsmaður
  • Gylfihandtekinn á heimili sínu í Manchester
  • Jón DaðiBöðvarsson
  • Kjartan Atli Kjartanssonþáttastjórnandi Körfuboltakvölds
  • Lárus Orri Sigurðssonsérfræðingur Stúkunnar
  • Leave the
  • Stöð 2 Sporthluti af Sportpakkanum

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 721 eind í 40 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 35 málsgreinar eða 87,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,64.