Stjórnmál

„Ást­hildur Lóa var kjöl­dregin í öllum fjöl­miðlum heims“

Jakob Bjarnar

2025-04-03 12:04

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Sigríður Á Andersen þingmaður Sjálfstæðisflokks spurði enn út í brotthvarf Ásthildar Lóu Þórsdóttur úr stól barna- og menntamálaráðherra í fyrirspurnartíma. var það Inga Sæland sem var fyrir svörum. Henni var ekki skemmt og ekki á þeirri skoðun sinni. Henni þótti áhugi Sigríðar á málinu hinn undarlegasti.

Fyrirspurnartíminn hafði verið tiltölulega rólegur fram til þessa tíma, Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hafði varist fyrirspurnum fimlega en í síðustu fyrirspurninni vildi Sigríður vita nánar um orsakir afsagnar Ásthildar Lóu. Hún sagðist hafa átt orðastað við forsætisráðherra Kristrúnu Frostadóttur í síðasta fyrirspurnartíma, og það hafi verið lítið á því græða. Helst undarlegt mætti heita ráðherra hafi haft í hótunum við manneskju út í en varla gæti það talist glæpur eða duga til afsagnar. Kristrún kveinkaði sér, sögn Sigríðar, undan bæði spurningu og tóni.

Felldi stormurinn í vatnsglasinu ráðherra?

En Sigríður taldi Ingu hafa breiðara bak en Kristrúnu og vildi eiga orðastað við hana um þessa uppsagn.

Og spurði: hún hafi axlað ábyrgð, en axlað ábyrgð á hverju? Það hlýtur vera réttmætt spyrja þegar fyrir liggur um hafi verið ræða storm í vatnsglasi. Hvers vegna stóð félagsmálaráðherra ekki með ráðherra sínum? Sér félagsmálaráðherra eftir því hafa gert það?]] Hvers vegna feykti stormurinn í vatnsglasinu þessum ráðherra úr embætti? [[Inga þakkaði fyrirspurnina en það var þungur undirtónn í orðum hennar; hún kvað fast orði og rósemd sem hún hafði ætlað sér vék fljótlega fyrir reiði; hún hafði augljóslega raun af fyrirspurn Sigríðar:

, ég stóð algerlega í báðar fætur með háttvirtum þingmanni Ásthildi Lóu Þórsdóttur, virti hundrað prósent hennar vilja, kom til móts við hana, eins og við gerðum öll, af öllu hjarta. Og þegar hún tók ákvörðun vilja ekki, og það er áður en RÚV biðst afsökunar, en það er vitað þarna er verið koma með eitthvað sem í raun enginn vissi hvað raunverulega var, þá leið Ásthildi Lóu þannig hún vildi treysti sér bara ekki til þess.

Inga endurtók það sem hún hefur áður sagt, Ásthildur Lóa vildi ekki á neinum tímapunkti, öll þau góðu verk sem hún er búin vera setja af stað í mennta- og barnamálaráðuneytinu, og þau góðu verk sem hún vissi ríkisstjórnin væri vinna;]] hún vildi ekki öll fjölmiðlun og það sem virðist ætla hanga endalaust hér í sölum alþingis, hennar persónulegu mál tækju allt sviðið. [[Ábyrgð á hverju axlaði Ásthildur Lóa?

Inga sagði Ásthildi Lóu hafa verið frábæran ráðherra og hún kæmi grjóthörð aftur til leiks sem þingmaður.

Þá þakkaði hún Sigríði Andersen hinn mikla áhuga sem hún sýndi þessu máli, en hún tæki ekki ákvarðanir fyrir ráðherra í ríkisstjórn þessa lands.

Sigríður taldi spurningunni algerlega ósvarað í seinni hluta fyrirspurnar sinnar. Og spurði: Ábyrgð á hverju axlaði hún ábyrgð. Var þetta ekki bara þannig ríkisstjórnin sjálf ræddist umfjöllun fjölmiðla en ekki ráðherrann fyrrverandi sem hefur tjáð sig ítarlega um sín mál í fjölmiðlum eftir hún sagði af sér?

Sigríður taldi Valkyrjunar hafa fórnað ráðherra sínum til verjast einhverri hótun, var hún ekki bara látin taka pokann sinn þessi fyrrverandi samstarfsmaður í ríkisstjórn heldur var hún kjöldregin í fjölmiðlum um allan heim. Er þetta til þess fallið styrkja tiltrú á ríkisstjórninni og dæmi um þessa röggsemi sem þær segjast hafa leiðarljósi í sínum störfum?

Neikvætt og niðurlægjandi fyrir Sigríði

Inga þakkaði þingmanni en með semingi:

Axla ábyrgð á hverju. Ég er verða ekki bara orðlaus heldur hálf hauslaus á þeim áhuga sem þingmaður hefur á þessu dapara máli. Engu líkara en hún hafi setið þann fund, þegar við vorum haldast í hendur og vissum ekki í rauninni hvað koma skal. Ég veit það ekki. Hún er kannski með einhverja spæjarstarfsemi þarna inni í fundarherberginu þar sem við vorum og getur kannski upplýst okkur um hvað raunverulega fór þar fram.

Og Inga hélt ótrauð áfram:

En, ég verð segja það, mér finnst það frekar neikvætt og niðurlægjandi fyrir viðkomandi koma hér með sleggjudóma um eitthvað sem hefði og var og hugsanlega var sagt því ég held þingmaður hafi bara ekki hugmynd um það.

Við svo búið strunsaði Inga úr ræðupúltinu. Svaraðu því þá bara, gall þá við úr sal. Inga snerist á hæli en fór svo í sæti sitt aftur og lauk þar með fyrirspurnatíma þingsins.

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Daði Már Kristóferssonfráfarandi forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands
  • Inga Sælandformaður
  • Kristrún Frostadóttirformaður
  • Sigríður Á Andersenþingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 791 eind í 39 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 32 málsgreinar eða 82,1%.
  • Margræðnistuðull var 1,52.