Halla Hrund og Kristján selja í­búðina í Foss­vogi

Svava Marín Óskarsdóttir

2025-04-03 12:02

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Halla Hrund Logadóttir, fyrrverandi forsetaframbjóðandi og oddviti Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, og eiginmaður hennar Kristján Freyr Kristjánsson, meðstofnandi og framkvæmdastjóri 50 skills, hafa sett íbúð sína við Snæland í Fossvogi á sölu. Ásett verð er 99, 4 milljónir.

Um er ræða 90 fermetra íbúð á annarri hæð í húsi sem var byggt árið 1973 og teiknað af Kjartani Sveinssyni. Halla og Kristján festu kaup á eigninni árið 2021 fyrir 57,2 milljónir króna.

Íbúðin skiptist í þrjú rúmgóð svefnherbergi, samliggjandi opið rými þar sem eldhús, stofa og borðastofa flæðan saman í eitt, þvottahús og eitt baðherbergi. Útgengt er út alrýminu á stórar suðursvalir.

Eigninni fylgir einnig 17 fermetra herbergi á jarðhæð með snyrtingu sem er sameiginleg með tveimur íbúðum, auk átta fermetra geymslu.

Í eldhúsinu er hvít og stílhrein innrétting. Fyrir miðju er stór eldhúseyja með góðu skáplássi og vinnuaðstöðu, sem skilur rýmin .

Nánari upplýsingar á fasteignavef Vísis.

Sindri Sindrason fór í morgunkaffi til Höllu Hrundar, þegar hún var í framboði til forseta Ísland, í maí í fyrra og fékk kynnast henni betur.

Nafnalisti

  • Halla Hrund Logadóttirorkumálastjóri
  • Kjartan Sveinssonformaður Strandveiðifélags Íslands
  • Kristján Freyr Kristjánssonframkvæmdastjóri
  • Sindri Sindrasonsjónvarpsmaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 185 eindir í 11 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 9 málsgreinar eða 81,8%.
  • Margræðnistuðull var 1,63.