Veiði­gjaldið stendur undir kostnaði

Heiðrún Lind Marteinsdóttir

2025-04-03 12:02

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Mikil umræða hefur verið um breytingar á veiðigjaldi á undanförnum dögum. Því hefur ítrekað verið haldið fram, ranglega, greitt veiðigjald nægi ekki fyrir þeim kostnaði sem því var ætlað mæta. Slíkar fullyrðingar eru einfaldlega rangar.

Rétt er átta sig á því undir hvaða útgjöldum veiðigjald á rísa. Á því hafa ekki orðið grundvallarbreytingar frá því það var fyrst lagt á. Upptöku veiðigjalds í sjávarútvegi rekja til tillagna Auðlindanefndar sem starfaði um aldamótin og var skipuð fulltrúum allra stjórnmálaflokka. Auðlindanefndin skilaði skýrslu árið 2000 og þar kom fram hún teldi gjaldtöku af nýtingu allra auðlinda eiga við þrenns konar rök styðjast. Í fyrsta lagi eigi gjaldtakan byggjast á því hún standi undir þeim kostnaði sem hið opinbera hefur af rannsóknum á og eftirliti með nýtingu auðlinda. Í öðru lagi eigi með gjaldtökunni tryggja þjóðinni hlutdeild í þeim umframarði sem nýting auðlinda í þjóðareign skapar. síðustu taldi nefndin gjaldtaka af nýtingu auðlinda fæli í sér leiðréttandi skatta og uppbætur (svokallaða græna skatta) til tryggja hagkvæma nýtingu á auðlindum.

Árið 2002 var lögum um stjórn fiskveiða breytt þar sem innheimta veiðigjalds var leidd í lög, samanber lög nr. 85/2002. Lagafrumvarpið sem þá var afgreitt var samið í kjölfar skýrslu Endurskoðunarnefndar um stjórn fiskveiða sem kom út árið 2001. nefnd lagði til tvískipt veiðigjald, annars vegar veiðigjald sem tæki mið af föstum kostnaði og hins vegar gjald sem tæki mið af afkomu. Við lögfestingu veiðigjaldsins varð þó raunin til einföldunar yrði gjaldið lagt á í einu lagi.

Til grundvallar álagningu veiðigjaldsins á árinu 2002 var horft til árlegs kostnaðar vegna þess hluta Fiskistofu er snýr fiskveiðum (um 400 mkr.), rekstrar Hafrannsóknastofnunar (um 940 mkr.) og afskrifta og fyrirsjáanlegs kostnaðar við fjárfestingar í hafrannsóknaskipum (150-200 mkr.), líkt og fram kemur í skýrslu endurskoðunarnefndar og vikið er nánar í því frumvarpi sem varð síðar framangreindum lögum nr. 85/2002. Þá segir í athugasemdum sem fylgdu því frumvarpi verði það lögum megi gera ráð fyrir veiðigjaldið geti staðið undir 3/4 hluta af núverandi rekstrarkostnaði Hafrannsóknastofnunar viðbættum þeim kostnaði sem hlýst af þeim auknu rannsóknum sem að framan greinir. Að auki var þar gert ráð fyrir veiðigjaldið geti staðið undir þeim kostnaði Fiskistofu sem snýr fiskveiðistjórnun og eftirliti.

Þann 19. júní 2012 voru samþykkt lög um veiðigjald, samanber lög nr. 74/2012. Þar kom fram í 2. gr. laganna veiðigjaldið væri lagt á í þeim tilgangi mæta kostnaði ríkisins við rannsóknir, stjórn, eftirlit og umsjón með fiskveiðum og fiskvinnslu og til tryggja þjóðinni í heild hlutdeild í þeim arði sem nýting sjávarauðlinda skapar. Með lögunum var lagt á bæði almennt veiðigjald og sérstakt veiðigjald. Almenna gjaldið var lagt til og áætlað með hliðsjón af kostnaði við stofnanir ríkisins á sviði fiskveiðistjórnunar og sjávarútvegs. Í lögskýringargögnum sem því frumvarpi fylgdu var ekki finna frekari útlistun eða sundurliðun á því sem þar félli undir.

Núgildandi lög um veiðigjald, sbr. lög nr. 145/2018, voru samþykkt á Alþingi í desember 2018. Markmiðsákvæði laganna er óbreytt frá fyrri lögum hvað þann þátt varðar sem snýr kostnaði ríkisins. Í skýringum sem fylgja ákvæðinu í greinargerð sem fylgir lögunum er tilvísun í áætlaðan kostnað ríkisins við grunn- og þjónusturannsóknir á fiskstofnum eða lífríki hafsins, stjórnsýslu fiskveiða sem og eftirlit og löggæslueftirlit með fiskveiðum.

Ef litið er á athugasemdir frumvarpa sem lögð hafa verið fram á Alþingi til grundvallar lögum um veiðigjald frá öndverðu, og reifaðar eru hér framan, þá eru það fyrst og síðast þrjár stofnanir ríkisins sem veiðigjaldi er ætlað styðja við. Fyrst ber nefna rannsóknir á fiskistofnum og lífríki hafsins, sem kemur mestu í hlut Hafrannsóknastofnunar. Þá er nefna stjórnsýslu fiskveiða sem hvílir á herðum Fiskistofu. lokum er það svo eftirlit og löggæsla með fiskveiðum sem kemur í hlut Fiskistofu og Landhelgisgæslunnar. Rétt er taka fram þessar stofnanir sinna ýmsum öðrum verkefnum sem veiðigjald á ekki fjármagna. Þá er rétt nefna áður en veiðigjaldið var upphaflega sett á þá greiddu útgerðir ýmis gjöld til ríkisins til standa straum af ýmsum kostnaði, til mynda veiðieftirlitsgjaldi og til Þróunarsjóðs sjávarútvegsins svo eitthvað nefnt. Útgerðir greiða enn þann dag í dag ýmis önnur gjöld til standa straum af ýmsum kostnaði við umsýslu og eftirlit, þrátt fyrir veiðigjald og tilgang þess. þar nefna aflagjald, vitagjald, hafnargjöld og ýmis gjöld til bæði Fiskistofu og Samgöngustofu í samræmi við gjaldskrár til standa undir raunkostnaði við veitta þjónustu.

Í tengslum við verkefnið Auðlindin okkar lagði þáverandi matvælaráðuneyti, undir stjórn Svandísar Svavarsdóttur fyrrum ráðherra, mat á þennan kostnað ríkisins. Þar voru ýmsar stofnanir taldar upp til viðbótar við Fiskistofu, Hafrannsóknastofnun og Landhelgisgæsluna. Mat ráðuneytisins á kostnaði ríkisins á grunn- og þjónusturannsóknum á fiskistofnum eða lífríki hafsins, stjórnsýslu fiskveiða sem og eftirlit og löggæslueftirlit með fiskveiðum hljóðaði upp á 7,9 milljarða króna á árinu 2023 líkt og sjá af myndinni sem hér fylgir fyrir neðan.

Ráðuneytið gerði svo gott betur og bætti þar við ef framlög úr ríkissjóði til Vaktstöðvar siglinga, Matís, menntunar í sjávarútvegi, framkvæmda við vita og hafnir og til hafnarbótarsjóðs væru talin með væri kostnaður við þjónustu ríkisins við sjávarútveg 11 milljarðar króna árið 2023. Hvernig samrýmist þetta lögum um veiðigjald? Ber veiðigjald fjármagna allt sem tengist kostnaði vegna Landeyjahafnar, ferjubryggja, kostnaði vegna skemmtiferðaskipa og flutningaskipa? Ber veiðigjaldi standa undir kostnaði af rannsóknum sem tengjast landbúnaði og fiskeldi? Svo sannarlega ekki.

Af þessari upptalningu virðist vera nokkuð ljóst matvælaráðuneytið virðist líta á veiðigjald sem ótæmandi tekjulind sem eigi fjármagna allt sem viðkemur sjávarútvegi og jafnvel hluta af kostnaði vegna annarra atvinnugreina, samanber ferðaþjónustu, landbúnað og fiskeldi.

Það er hins vegar munur á því hvað atvinnugreinin sjávarútvegur kostar ríkið og þeim kostnaði sem veiðigjaldinu, einu og sér, ber mæta samkvæmt lögum. Í þessu samhengi verður hafa í huga ríkissjóður ber kostnað af hverri einustu atvinnugrein sem hér starfar, en vissulega mismikinn. Á móti fær ríkissjóður tekjur í formi ýmissa skatta og opinberra gjalda sem af verðmætasköpun atvinnugreinanna hlýst. Almennt er það svo eftir því sem betur gengur hjá einstaka fyrirtækjum í hvaða atvinnugrein sem er, og því hærri laun sem þau greiða starfsfólki, því meiri tekjur fær ríkissjóður og sveitarfélög af verðmætasköpun fyrirtækjanna. Hið sama gildir um tekjur ríkissjóðs og sveitarfélaga af fyrirtækjum í sjávarútvegi, en því til viðbótar greiða þau veiðigjald.

Samtökin hafa tekið saman framlög ríkisins til þeirra stofnana sem óumdeilt er veiðigjald ber standa undir samkvæmt lögum, ásamt nokkrum öðrum liðum sem ríkissjóður ber kostnað af vegna sjávarútvegs, sem gætu að hluta til fallið undir þá skilgreiningu. Kostnaður ríkisins hefur verið í kringum 4% af aflaverðmæti sjávarafurða á þessum árum, sem er í samræmi við það hlutfall sem fjallað er um í þeim athugasemdum sem fylgdu með í greinargerð núgildandi laga um veiðigjald. Þá samantekt sjá á myndinni hér fyrir neðan, viðbættum tekjum ríkissjóðs af veiðigjaldi, og nær samantektin yfir nokkurra ára tímabil.

Eins og sjá þá eru tekjur ríkisins af veiðigjaldi mismiklar frá einu ári til annars og á það sér eðlilegar skýringar, enda ráðast þær af afkomu fiskveiða og afla einstaka fisktegunda sem hvort um sig getur sveiflast töluvert á milli ára. Að sama skapi eru þær misháar í samanburði við kostnað ríkissjóðs sem gjaldinu ber mæta samkvæmt lögum frá einu ári til annars. Eins og sjá er veiðigjald á hverju einasta ári töluvert umfram kostnað ríkisins, árinu 2020 undanskildu. Miðað við áætlanir um framlög ríkissjóðs til þessara málaflokka í ár og tekjur ríkissjóðs af veiðigjaldi verði um 12,7 milljarðar, verður veiðigjaldið hátt í 60% umfram þessi framlög. Það því hverjum og einum ljóst vera allt tal um veiðigjald standi ekki undir kostnaði á ekki við nein rök styðjast.

Til viðbótar síðan nefna í skýringum við markmiðsákvæði núgildandi laga um veiðigjald segir veiðigjaldi einnig ætlað tryggja þjóðinni beina og sýnilega hlutdeild í þeirri afkomu sem verður til við veiðar á nytjastofnum sjávar. Hér var gerð breyting á fyrri lögum til áréttingar um aðrir atvinnuvegir og borgarar landsins njóta margvíslegs óbeins góða af öflugum sjávarútvegi á Íslandi og var vísað til skrifa og áherslna Auðlindanefndarinnar í þeim athugasemdum sem fylgdu með í greinargerð laganna. Með þessu er átt við þá staðreynd þjóðin alls nýtur góðs af öflugum sjávarútvegi. Hér fer fram gríðarleg verðmætasköpun með keðjuverkandi áhrifum á allt hagkerfið og tekjur hins opinbera og samfélagsins alls verða meiri fyrir vikið. Nýsköpun og tækniþróun er hvergi meiri en í sjávarútvegi. Verulegur árangur hefur náðst í umhverfis- og loftslagsmálum, langt umfram aðrar atvinnugreinar hér á landi og sjávarútveg í öðrum löndum. Þá hefur engin atvinnugrein jafnari dreifingu atvinnutekna um landið en sjávarútvegur, sem er hornsteinn atvinnu- og mannlífs á fjölmörgum svæðum vítt og breitt um landið.

Það kann því ekki góðri lukku stýra styðjast við skynjun og skapandi útreikninga í sínum málflutningi frekar en staðreyndir. Veiðigjaldinu var ætlað standa undir ákveðnum kostnaði og það hefur það að jafnaði gert sama hvað einstaka ráðherra kann finnast um það. Í lokin svo velta því fyrir sér hvort aðrar atvinnugreinar muni þurfa sæta sömu meðferð af hálfu stjórnvalda. Ferðaþjónustan myndi þá sem dæmi þurfa greiða sérstaklega fyrir starfsmenn Isavia, löggæslu á vegum úti, slit á vegum og menntun matreiðslumanna. Listinn gæti orðið langur.

Höfundur er framkvæmdastjóri SFS.

Nafnalisti

  • SFSáður LÍÚ
  • Svandís Svavarsdóttirþingmaður Vinstri grænna og fyrrverandi umhverfisráðherra

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 1676 eindir í 68 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 59 málsgreinar eða 86,8%.
  • Margræðnistuðull var 1,65.