Staðfesta viðræður Pútíns og Trumps

Ritstjórn mbl.is

2025-03-17 11:53

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Yfirvöld í Rússlandi staðfestu í dag Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, muni ræða saman í síma á morgun um hvernig binda megi enda innrásarstríð Rússa í Úkraínu.

Trump sagði við fréttamenn í gær mikil vinna hafi verið unnin á milli aðila leysa Úkraínudeiluna og hann myndi ræða við Pútín á þriðjudag.

Það er svo sannarlega raunin. Það er verið undirbúa slíkt samtal, sagði Dmitrí Peskov, talsmaður Rússlandsstjórnar, við fréttamenn í dag, án þess tjá sig um það sem leiðtogarnir muni ræða um.

Steve Witkoff, sem fer fyrir sendinefnd Bandaríkjamanna, var í Moskvu í síðustu viku til kynna sameiginlega vopnahléstillögu Bandaríkjamanna og Úkraínu sem gerir ráð fyrir 30 daga hléi á hernaðaraðgerðum.

Pútín hefur sagst styðja hugmyndina um vopnahlé en segist vera með lista af erfiðum kröfum sem þarf uppfylla áður en hægt verði semja um frið.

Nafnalisti

  • Dmitrí Peskovtalsmaður rússnesku ríkisstjórnarinnar
  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Steve Witkoff
  • Vladimír Pútínforseti

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 158 eindir í 6 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 6 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,71.