Slys og lögreglumál

Börnin sváfu í brennandi húsinu

Ritstjórn mbl.is

2025-04-03 12:12

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Ákæra hefur verið gefin út á hendur fjórum mönnum í hinu svokallaða Aurskog-Høland-máli í Noregi, einu nokkurra nýlegra sakamála þar í landi sem eiga það sameiginlegt norskir undirheimamenn sem troða illsakir við aðra panta einfaldlega leigumorðingja, gjarnan á táningsaldri, frá sænskum glæpaklíkum.

Eru téð mál, og raunar fleiri atburðir í norskum undirheimum nýlega, skýr dæmi um samninga milli hópa afbrotamanna í skandinavísku nágrannalöndunum tveimur um alvarleg afbrot sem innleigðu mönnunum frá Svíþjóð er ætlað fremja í Noregi, en önnur hlið á þeim peningi er sókn sænskra glæpaklíka á borð við Foxtrot og Shottaz inn í undirheima Noregsmegin þar sem menn eiga einfaldlega síður á hættu vera drepnir.

Heppni ein hafi ráðið

Aurskog-Høland-málið snýst um tilraun í júní í fyrra til kveikja í einbýlishúsi í téðu sveitarfélagi í Akershus-fylki sem umlykur norsku höfuðborgina Ósló. Í húsinu býr fjölskylda með tvö börn og snerist málið um skuld heimilisföðurins við verkbeiðanda í Noregi, en aðalákærði í málinu, tvítugur Svíi, er grunaður um hafa borið eld húsinu. Auk hans sætir annar Svíi ákæru og tveir Norðmenn, þar af sem grunaður er um hafa pantað atlöguna.

Málið er hið alvarlegasta, segir Trude Antonsen héraðssaksóknari í samtali við norska ríkisútvarpið NRK, ákæruvaldið telur heppni eina hafa ráðið því mannslíf fóru ekki forgörðum, heldur hún áfram, en fjölskyldan svaf værum svefni á heimili sínu þegar aðkeyptur afbrotamaður frá Svíþjóð gusaði bensíni yfir veggi hússins klukkan hálffimm aðfaranótt 25. júní í fyrra og bar því næst eld .

Glæpir sem þjónustuvara

Norðmaðurinn, sem grunaður er um hafa pantað aðförina, er 26 ára gamall, hann er eftirlýstur þar sem hann fer huldu höfði erlendis, en landi hans, 31 árs, sem meðákærður er, útvegaði búnað og annaðist akstur haldi ákæruvaldsins. Fjórði maðurinn í málinu er 21 árs gamall Svíi sem ákærður er fyrir ráða brennumanninn til verksins.

Rannsakaði norska lögreglan málið sem svokallað crime as service-mál, afbrot sem þjónustuvöru, og segir hugtakið meira en mörg orð um þróunina í skandinavískum undirheimum hin síðustu ár sem Morgunblaðið og mbl.is hafa fylgt ítarlega eftir.

NRK

NRK-II (pöntunarmaðurinn eftirlýstur)

NRK-III (tálbeituaðgerð norskrar lögreglu við aðra drápspöntun)

Nafnalisti

  • Foxtrotglæpagengi
  • Shottazglæpaklíka
  • Trude Antonsensaksóknari í málinu

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 396 eindir í 14 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 10 málsgreinar eða 71,4%.
  • Margræðnistuðull var 1,72.