Brúðarkjóll Melania Trump falur fyrir 6 milljónir

Ragna Gestsdóttir

2025-03-26 15:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Glæsilegur Christian Dior brúðarkjóll forsetafrúarinnar Melania Trump er til sölu á Ebay, listaverðið er 45 þúsund dalir eða um 6 milljónir króna.

Kjóllinn er hannaður af John Galliano, og valdi Melania hann sjálf á sínum tíma í París með aðstoð ritstjóra Vogue, Anna Wintour. Melania og Donald Trump giftu sig í janúar 2005. Trump bað Melania í apríl 2004 eftir sex ára samband og sonur þeirra, Barron, fæddist í mars 2006.

Rithöfundurinn Liana Satenstein sagði frá því kjóllinn sem Trump greiddi sögn 100 þúsund dali fyrir væri skráður til sölu á Ebay fyrir 45 dali dali (eða besta tilboð) með ókeypis sendingu frá konu sem segist hafa keypt kjólonn af forsetafrúnni. Satenstein sagði Patricia Torvalds vinkonu sína hafa rekist á auglýsinguna þegar hún var leita 80s Dior kjólum. Kjólinn var settur í sölu í janúar.

Seljandinn svaraði Torvalds og sagðist hafa keypt kjólinn frá Melania á 70 þúsund dali, en þær eiga sameiginlegan vin, fyrir sitt eigið brúðkaup árið 2010. Hún hafi gert smávægilegar breytingar á upprunalegu hönnuninni, þar á meðal nýtt lag af satíni neðst, útsaumsstykki ofan og meira efni aftan á kjólnum auk þess sem hún hefði bætt hlýrum við.

Melania klæddist kjólnum ásamt brúðarslöru á forsíðu Vogue í febrúar 2005.

Kjóllinn var saumaður úr 92 metrum af hvítu hertogaynjusatíni og handsaumaður með kristalperlum, vinnan við kjólinn tók um 550 klukkustundir. Kjólinn vegur um 30 kg eins og kom fram í Vogue á sínum tíma.

Donald Trump, sem bað Melania á leið þeirra á Met Gala árið 2004, deildi mynd frá brúðkaupi þeirra í janúar þegar þau fögnuðu 20 ára brúðkaupsafmæli.

View this post on Instagram

A post shared by President Donald J. Trump (@realdonaldtrump)

Nafnalisti

  • Anna Wintourritstjóri tískutímaritsins Vogue
  • Barronfjórtán ára gamall, yngsti sonur Trump og eina barn þeirra hjóna
  • Christian Diorfranskt tískuhús
  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Ebayuppboðsvefur
  • John Gallianoumdeildur fatahönnuður
  • Liana Satenstein
  • Melaniaforsetafrú
  • Melania Trumpfyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna
  • Met Galafjáröflunarkvöld
  • Patricia Torvalds
  • President Donald J. Trump
  • Viewskol sem fer ekki inn í hárið
  • Voguebandarískt tímarit

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 283 eindir í 15 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 12 málsgreinar eða 80,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,64.