Helena var krýnd Ungfrú Ísland í kvöld
Lovísa Arnardóttir
2025-04-03 22:41
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Helena Hafþórsdóttir O´Connor var í kvöld krýnd Ungfrú Ísland. Helena var Ungfrú Viðey og hlaut einnig titilinn Marc Inbane stúlkan og Mac stúlkan. Helena er tuttugu ára gömul og vinnur sem vaktstjóri á Te og kaffi auk þess að stunda sálfræði í háskóla.
„Móðir mín er mín stærsta fyrirmynd í lífinu, ekki bara hefur hún kennt mér svo mikið en hún hefur alltaf hvatt mig til að elta draumana mín. Á eftir henni lít ég einnig mikið upp til Vigdísar Finnbogadóttur sem fyrsta lýðræðislega kosna kvenkyns þjóðarleiðtoga heims. Úr tískuheiminum lít ég upp til og fæ innblástur frá Rosie HuntingtonWhitely,“ sagði Helena í viðtali við Vísi í aðdraganda keppninnar.
Þær stúlkur sem náðu í topp fimm í keppninni voru þær, Helena Hafþórsdóttir O’ Connor eða Ungfrú Viðey, Dimmey Rós Lúðvíksdóttir eða Ungfrú Digranes, Kristín Anna Jónasdóttir eða Ungfrú Reykjavík, Kamilla Guðrún Lowen eða Ungfrú Hafnarfjörður og Guðrún Eva Hauksdóttir, eða Ungfrú Esja.
Dimmey Rós var í fimmta sæti, Kristín Anna í fjórða sæti, Kamilla Guðrún í þriðja sæti og Dimmey Rós í því öðru.
Veittir voru ýmsir aukatitlar í keppninni
Katla Fitness Stúlkan er Ungfrú Garðabær, Halldóra Hlíf Þorvaldsdóttir
Marc Inbane stúlkan er Ungfrú Viðey, Helena Hafþórsdóttir O‘Connor
Tree Hut stúlkan er Ungfrú Hafnarfjörður, Kamilla Guðrún Lowen
Blondie stúlkan er Ungfrú Digranes, Dimmey Rós Lúðvíksdóttir
Wagtail stúlkan er Ungfrú Hafnarfjörður, Kamilla Guðrún Lowen
Mac stúlkan er Ungfrú Viðey, Helena Hafþórsdóttir O‘Connor
Define the Line stúlkan er Ungfrú Hafnarfjörður, Kamilla Guðrún Lowen
Fyrirsætan er Ungfrú Digranes, Dimmey Rós Lúðvíksdóttir
Netstúlkan, valin af fólkinu, er Ungfrú Vesturland, Regína Lea Ólafsdóttir
Vinsælasta stúlkan er Ungfrú Reykjavík, Kristín Anna Jónasóttir
Fyrirmyndarstúlkan er Ungfrú Keflavík, Móeiður Sif Skúladóttir
Þær stúlkur sem náðu í topp fimm í keppninni voru þær, Helena Hafþórsdóttir O’ Connor eða Ungfrú Viðey, Dimmey Rós Lúðvíksdóttir eða Ungfrú Digranes, Kristín Anna Jónasdóttir eða Ungfrú Reykjavík, Kamilla Guðrún Lowen eða Ungfrú Hafnarfjörður og Guðrún Eva Hauksdóttir, eða Ungfrú Esja.
Keppnin fór fram í Gamla bíó í kvöld og var í beinu streymi á Vísi og Stöð 2 Vísi. Keppendur voru tuttugu talsins og á aldrinum 18 til 36 ára. Sóldís Vala Ívarsdóttir, Ungfrú Ísland 2024, krýndi arftaka sinn, en Sóldís keppti fyrir Íslands hönd í keppninni Miss Universe sem fór fram í Mexíkó í fyrra.
Dómnefndin var skipuð fimm konum með ólíkan bakgrunn, þeim Ragnheiði Ragnarsdóttur, leikkonu og Ólympíufara, Sólrúnu Lilju Diego áhrifavaldi, Brynju Dan Gunnarsdóttur, athafnakonu og frumkvöðli, Elísabet Huldu Snorradóttur, Ungfrú Ísland 2020, og Hönnu Rún Bazev Óladóttur atvinnudansara.
Nafnalisti
- Blondiehársnyrtistofa
- Brynja Dan Gunnarsdóttirvaraþingmaður Framsóknarflokksins og eigandi Extraloppunnar
- Connoröflugur íþróttamaður á sínum yngri árum
- Define the Lineíþróttavörumerki
- Dimmey Rós Lúðvíksdóttir23 ára
- Elísabet Huldu
- Esjakjötvinnsla
- Guðrún Eva Hauksdóttir
- Halldóra Hlíf Þorvaldsdóttir
- Hanna Rún Bazev Óladóttirdansari
- Helena Hafþórsdóttir
- Kamilla Guðrún Lowen
- Katla Fitness Stúlkan
- Kristín Anna Jónasdóttir
- Kristín Anna Jónasóttir
- MacMid-American Conference
- Marc Inbanehollenskt merki
- Miss Universefegurðarsamkeppni
- Móeiður Sif Skúladóttir
- Ragnheiður Ragnarsdóttirleikkona
- Regína Lea Ólafsdóttir
- Rosie HuntingtonWhitely
- Sóldís Vala Ívarsdóttir
- Sólrún Lilja Diegoein þeirra fimm ungu mæðra sem hrintu af stað vefsíðunni mamie. is, þar sem þær leggja markvisst upp úr að gera ungum mæðrum kleift að finna svör við spurningum sem kunna að vakna
- Stöð 2 VísiRás 5 hjá notendum Vodafone, rás 8 hjá notendum Símans
- Tree Hut
- Ungfrú Íslandfegurðarsamkeppni
- Ungfrú Reykjavíkhárgreiðslu- og snyrtistofunni
- Vigdís Finnbogadóttirfyrrverandi forseti Íslands
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 388 eindir í 25 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 22 málsgreinar eða 88,0%.
- Margræðnistuðull var 1,48.