KSÍ boðar til fundar - Spenna fyrir vali Arnars

Helgi Fannar Sigurðsson

2025-03-10 12:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, kynnir sinn fyrsta landsliðshóp á miðvikudaginn.

Það hefur verið boðað til fréttamannafundar í Laugardalnum klukkan 13:15 á miðvikudag og þar verður hópurinn kynntur. Situr Arnar til svara.

Um er ræða hóp fyrir leiki gegn Kósóvó í umspili um halda sæti Íslands í B-deild Þjóðadeildarinnar. Leikið er heima og heiman en Strákarnir okkar spila sinn heimaleik á Spáni.

Margir eru spenntir fyrir því sjá fyrsta hóp Arnars, sem tók við fyrr í vetur, og kemur í ljós hverjir þar verða eftir rúma tvo sólarhringa.

Nafnalisti

  • Arnar Gunnlaugssonþjálfari
  • B-deild1. sæti

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 100 eindir í 6 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 6 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,72.