Slys og lögreglumál

Maðurinn í Loðmundarfirði leiddur á brott af lögreglu

Ritstjórn mbl.is

2025-03-28 22:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Listamaðurinn Joey Syta, sem komst í fréttirnar á dögunum eftir hann lenti í sjálfheldu í Loðmundarfirði og var bjargað af björgunarsveitum, var leiddur á brott af lögreglumönnum í hálfleik á körfuboltaleik Hattar og Álftaness á Egilsstöðum í gær.

Hafði hann þá verið í samskiptum við börn á leiknum og fullorðinn einstaklingur á leiknum sakaði hann um lykta af marijúana sögn Syta.

Lögregla segir Syta ekki sakaðan um neitt glæpsamlegt en Hjalti Bergmar Axelsson, yfirlögregluþjónn á Egilsstöðum, segir óskað hafi verið eftir liðsinni lögreglu á leiknum vegna háttsemi einstaklings án þess nefna Syta á nafn. Hann segir þó ekkert hafi verið upp á háttsemi hans klaga og hann hafi yfirgefið svæðið þegar eftir því var óskað.

Sjálfur segir Syta í samtali við mbl.is afskipti lögreglu hafi komið flatt upp á hann. Hann hins vegar mikill áhugamaður um körfubolta og honum þyki miður geta ekki komið í íþróttahúsið nýju til þess skjóta á körfu eða fara á leik með Hetti. Hann segist brátt yfirgefa Ísland en hefur augastað á húseignum á Seyðisfirði.

Börnin hafi sóst í hann

Syta hefur einmitt dvalið á Seyðisfirði undanfarið og segir börnin á Austfjörðum hafi sótt mjög í hann eftir fregnir bárust af upplifun hans í Loðmundarfirði.

Á leiknum hópuðust börnin í kringum mig og ég hef reynt gefa mér tíma fyrir þau þar sem ég er sjálfur ungur í anda (a big kid at heart). Ég var hins vegar búinn segja þeim þau gætu ekki verið í kringum mig þegar leikurinn væri í gangi þannig ég horfði svo á leikinn eins og hver annar. Svo kom hálfleikur og þá er þarna krullhærður maður sem segir við mig það maríjúanalykt af mér og hann biður mig um fara. Ég vildi ekki valda neinum vandræðum og ætlaði fara en þá kom lögreglan og fylgdi mér út. Ég veit ekki einu sinni um hvað málið snýst, segir Syta.

Frítt far á Seyðisfjörð

Hann segir lögreglumenn hefðu lyktað af honum og tjáð honum hann lyktaði alls ekki af marijúana. Þeir buðust til þess skutla honum og vinkonu hans til Seyðisfjarðar aftur og þáðu þau það.

Þetta var frítt far og bara frábært það, segir Syta, sem á afmæli í dag.

Nafnalisti

  • Hjalti Bergmar Axelssonaðalvarðstjóri
  • Joey Syta

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 405 eindir í 18 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 17 málsgreinar eða 94,4%.
  • Margræðnistuðull var 1,69.