Viðskipti

Stjórnin telur RÚV enn vera of skuld­sett

Atli Ísleifsson

2025-04-02 12:56

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Stjórn Ríkisútvarpsins ohf telur RÚV enn vera of skuld sett og mun halda áfram leita varanlegra lausna á skuldsetningu þess. Þetta þrátt fyrir margvíslegar aðgerðir á undanförnum árum sem leitt hafi til skuldalækkunar. Tap á rekstri Ríkisútvarpsins nam 188 milljónum króna á árinu 2024.

Þetta segir í fundargerð stjórnar Ríkisútvarpsins ohf frá 22. mars síðastliðinn þar sem samstæðureikningur félagsins var lagður fram og samþykktur.

Þar kom fram samkvæmt rekstrarreikningi og yfirliti um heildarafkomu ársins 2024 hafi rekstrartekjur samstæðunnar numið 9,1 milljarði króna. Tekjurnar jukust um 423 milljónum króna á milli ára eða 4,8 prósent en teknu tilliti til verðlagsþróunar þá hafi tekjur lækkað um eitt prósent raunvirði milli ára. Rekstrargjöld námu tæpum 9,0 milljörðum og jukust um 730 milljónum króna milli ára eða 8,9 prósent.

Laun- og launatengd gjöld námu 3.881 m.kr. og jukust um 195 m.kr. milli ára eða 5,3%. teknu tilliti til verðlagsþróunar lækkuðu launaútgjöldin milli ára. Meðalfjöldi stöðugilda á árinu var 275 en frá miðju ári hefur stöðugildum verið fækkað sem hluta af hagræðingaraðgerðum félagsins.

Annar rekstrarkostnaður, frátöldum afskriftum, nam 4.582 m.kr. og jókst um 503 milljónir króna milli ára eða 12,3% en riflega 6% teknu tilliti til verðlagsþróunar. Aukning milli ára skýrist fyrst og fremst af gjaldfærslum vegna stórra íþróttaviðburða á árinu og kostnaðar í tengslum við eldsumbrotin á Reykjanesskaga og tvennra kosninga.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur námu 365 m.kr. og lækkuðu um 113 m.kr. milli ára sem skýrist stærstu leyti af lækkun verðbólgu milli ára og gengishagnaði á árinu.

teknu tilliti til afskrifta og fjármagnsliða nam tap af rekstri RÚV samtals 188 m.kr. á árinu 2024 og versnaði afkoman um 194 milljónir króna milli ára.

Í árslok námu heildareignir 9.306 m.kr. og lækkuðu eignir félagsins um 170 m.kr. milli ára. Handbært stóð í stað milli ára i 12 m.kr. en skuldir við lánastofnanir námu einnig 12 m.kr. og lækkuðu um 141 m.kr. milli ára. Eigið í árslok nam 1.622 m.kr. og var eiginfjárhlutfallið 17,4% í árslok, segir í fundargerðinni.

Markmið um hallalausan rekstur náðist ekki

Fram kemur markmið stjórnar hafi verið rekstur RÚV ávallt yfirvegaður og hallalaus. Mikilvægt tryggja reksturinn sjálfbær til langs tíma litið.

Í því felst skuldsetning félagsins viðráðanleg og lausafjárstaðan með þeim hætti félagið geti mætti óvæntum áföllum í rekstri. Skuldir RÚV hafa um árabil verið háar, m.a. vegna uppgjörs á eldri lífeyrisskuldbindingum. Þrátt fyrir margvíslegar aðgerðir á undanförnum árum sem hafa leitt til lækkunar skulda telur stjórn RÚV félagið enn of skuldsett og mun halda áfram leita varanlegra lausna á skuldsetningu þess.

Á árinu 2024 náðist ekki markmið um hallalausan rekstur og nam tap á rekstri félagsins 188 m.kr. Taprekstur félagsins hluta rekja til þess tekjur félagsins lækkuðu raunvirði á milli ára en einnig til hárra gjaldfærsina vegna íþróttaviðburða og kostnaðar vegna kosninga og eldsumbrota. A árinu var gripið til ýmissa ráðstafana til bæta afkomu og sjóðstöðu innan ársins. Aðgerðirnar skiluðu meðal annars því skuldir við lánastofnanir, teknu tilliti til handbærs fjár, voru komnar i jafnvægi um áramót og nam viðsnúningurinn innan ársins 141 milljón króna. Þá var aðgerðunum enn fremur ætlað stuðla hallalausum rekstri á árinu 2025 og sjóðstaða félagsins verði jákvæð í árslok 2025, segir í fundargerðinni.

Nafnalisti

    Svipaðar greinar

    Tölfræði

    • Textinn inniheldur 545 eindir í 28 málsgreinum.
    • Það tókst að trjágreina 28 málsgreinar eða 100,0%.
    • Margræðnistuðull var 1,64.