Stjórnmál

„Hér er verið að saka fólk um al­var­lega þætti“

Jakob Bjarnar

2025-03-31 16:08

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Sigríður Á. Andersen þingmaður Miðflokksins gekk á Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í fyrirspurnartíma á þingi rétt í þessu og spurði nánar út í mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur fráfarandi barna- og menntamálaráðherra. Kristrún kunni ekki meta spurninguna tóninn í röddu Sigríðar.

Óhætt er segja heitt hafi verið í kolum á þinginu fyrir stundu, í óundirbúnum fyrirspurnartíma en þar var meðal annarra Kristrún Frostadóttir til svara. Sigríður Á. Andersen telur ekki öll kurl komin til grafar í máli er varðar afsögn barna- og menntamálaráðherra. Og hún vildi enn vita hvort og þá hvernig Kristrún, og þá forysta ríkisstjórnarinnar, hafi hlutast til um afsögn Ásthildar.

Telur forsætisráðherra sig hafa staðið með Ásthildi Lóu?

RÚV hefur beðist afsökunar og rykið er sest, sagði Sigríður og rakti málið. Ljóst er henni þykir sem ástæður afsagnarinnar væru ræfilslegar. Eða hvað?

Þess vegna er ekki úr vegi spyrja hæstvirtan forsætisráðherra, verkstjóra þessarar ríkisstjórnar, hvers vegna ráðherra sagði af sér, sagði Sigríður og vitnaði í forsætisráðherra sem mun hafa sagt málið væri auðvitað alvarlegt. Hvort hún væri enn þeirrar skoðunar; telur hún ráðherra hafa brotið lög eða sýnt af sér svo ámælisverða hegðun forsætisráðherra geti ekki hugsað sér vinna með henni?

Sigríður vildi vita hvort Kristrún hafi gert eitthvað til styðja Ásthildi Lóu?

Kristrún sagði það rétt nokkrir dagar væru liðnir frá því barnamálaráðherra tók það upp hjá sjálfri sér segja af sér. Málið hafi verið til umræðu á þinginu og hún hefði í sjálfu sér engin önnur svör en þá. En sagði sér meinalausu ítreka henni þætti viðbrögð Ásthildar Lóu ekki eðlileg, setja sig í samband við þann sem sendi kvörtunina til forsætisráðuneytisins. En það væri ekki hennar svara til um persónulega ákvörðun Ásthildar Lóu.

Alvarlegar ásakanir Sigríðar

Sigríði þótti augljóslega ekki mikið til svara Kristrúnar komu og herti tökin:

Það hafi verið eftirmálar, en ekki fréttin sjálf! þáverandi ráðherra hún hafi vogað sér hafa samband við manneskju út í sem varðaði barn hennar. Ekki um pólitík. Það blasir við ríkisstjórninni barst hótun utan úr , henni voru settir afarkostir, utan úr , var kallað eftir því ráðherra viki.

Sigríður spurði hvernig það mætti vera forystumenn ríkisstjórnarinnar sætu klukkustundum saman yfir málinu og kæmust svo þeirri niðurstöðu ráðherrann segði af sér. Þingið og þjóðin eigi rétt á því vita hvernig í pottinn búið með þetta mál.

Kristrún sagðist ekki kunna meta þann tón sem hún taldi sig greina í röddu Sigríðar.

Það hefur hvergi komið fram, það eru engin merki um það einhver hafi verið neyddur til segja af sér. Hér er verið saka fólk um alvarlega þætti, sagði Kristrún þá. Hún ítrekaði ákvörðunin um afsögn hafi verið Ásthildar Lóu og sagðist vera svara spurningunni þegar frammíköll bárust utan úr sal.

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Kristrún Frostadóttirformaður
  • Sigríður Á. Andersenþingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 516 eindir í 28 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 26 málsgreinar eða 92,9%.
  • Margræðnistuðull var 1,63.