Stefán benti á tattúið og minntist frænku sinnar
Sindri Sverrisson
2025-03-17 09:03
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Landsliðsmaðurinn Stefán Teitur Þórðarson tileinkaði náfrænku sinni markið mikilvæga sem hann skoraði á Englandi í gær, nánast nákvæmlega fimm árum eftir að hún féll frá.
Skagamaðurinn var hetja Preston North End á laugardaginn þegar hann skoraði afar laglegt sigurmark í lok leiks, í 2–1 sigri gegn Portsmouth í ensku B-deildinni í fótbolta. Markið má sjá eftir 3 mínútur af myndbandinu hér að neðan.
„Ég er auðvitað mjög glaður yfir að hafa skorað þetta mark. Bróðir minn er hérna með konunni sinni og tveimur sonum, og afi minn og amma eru hér líka. Svo það er stórkostleg tilfinning að hafa skorað með þau hérna, hjálpað liðinu og sýnt þeim hvað ég get gert,“ sagði Stefán í viðtali á heimasíðu Preston.
Þakklátur með ömmu og afa í stúkunni
Þegar hann fagnaði markinu sínu þá lyfti hann upp annarri stuttbuxnaskálminni og benti á tattú sem hann er með á lærinu. Hann benti einnig til himna og minntist þannig frænku sinnar, Önnu Bjarkar Þorvarðardóttur, sem lést 16. mars 2020 eftir stutt veikindi. Það hafði því enn meiri þýðingu en ella fyrir Stefán að skora á laugardaginn:
„Það hefur alla þýðingu fyrir mig. Ég er með tattú til minningar um móðursystur mína en á morgun [í gær] eru fimm ár frá því að hún lést. Eins og ég sagði þá eru afi minn og amma líka hérna og ég er svo þakklátur fyrir að þau skyldu vera hérna þegar ég skoraði,“ sagði Stefán Teitur sem nú hefur skorað tvö mörk í ensku B-deildinni, eftir komuna frá Silkeborg í Danmörku í fyrra.
View this post on Instagram
A post shared by Preston North End FC (@pnefcofficial)
Ljóst er af viðbrögðum á samfélagsmiðlum Preston að stuðningsmenn félagsins virðast hæstánægðir með Stefán. Liðið er nú í 14. sæti deildarinnar en á afar spennandi tíma fyrir höndum og þá ekki síst Stefán sjálfur.
Spenntur fyrir landsleikjum og bikarslag við Villa
Hann kveðst nefnilega hlakka mikið til komandi landsleikja gegn Kósovó á fimmtudag og sunnudag — fyrstu landsleikjanna undir stjórn Arnars Gunnlaugssonar — en bíður einnig eftir leiknum við Aston Villa í 8 — liða úrslitum enska bikarsins. Það verður heimaleikur Preston sem fram fer 30. mars:
„Það eru allir svo spenntir og dagskráin með landsliðinu hentar vel því við spilum seinni landsleikinn á sunnudaginn. Ég kem því aftur til Englands á mánudaginn svo við höfum alla vikuna til að undirbúa okkur fyrir Villa-leikinn. Þetta verður frábær leikur og vonandi eru allir í kringum félagið eins og við leikmennirnir því við getum bara ekki beðið,“ sagði Stefán Teitur.
Nafnalisti
- Anna Björk Þorvarðardóttir
- Arnar Gunnlaugssonþjálfari
- Portsmouthenskt Cdeildarlið
- PrestonBdeildarlið
- Preston North Endlið
- Preston North End FC
- Silkeborgdanskt lið
- Stefán Teitur ÞórðarsonSkagamaður
- Viewskol sem fer ekki inn í hárið
- Villiveiðistaður
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 435 eindir í 23 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 19 málsgreinar eða 82,6%.
- Margræðnistuðull var 1,71.