Slys og lögreglumál

Að minnsta kosti 53 látnir

Ritstjórn mbl.is

2025-03-16 22:40

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Að minnsta kosti 53 eru látnir, þar af fimm börn, eftir árásir Bandaríkjamanna á borgirnar Sanaa og Radaa í Jemen.

Þetta segja nýjustu tölur frá heilbrigðisráðuneytinu í Saana, sem er undir stjórn Húta.

Gæti staðið yfir í einhverja daga og stigmagnast

Þá voru um hundrað manns særðir eftir árásirnar sögn heilbrigðisráðuneytisins fyrr í dag og var þar greint frá flest fórnarlambanna væru konur og börn. Bandaríkjamenn segjast þó hafa fellt nokkra háttsetta leiðtoga Húta.

Hernaðaraðgerðin, fyrirskipuð af Donald Trump Bandaríkjaforseta, beindist uppreisnarmönnum Húta og voru árásir gerðar ýmist frá hafi eða lofti.

Síðustu mánuði hafa Hútar truflað skipaferðir um Rauðahaf. Herinn, undir stjórn Joe Bidens, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, réðst ítrekað gegn Hútum með litlum árangri.

Talið er árás Bandaríkjanna gæti staðið yfir í einhverja daga og stigmagnast, háð því hvernig uppreisnarmennirnir bregðast við. En þess ber geta í kjölfar árásarinnar sögðust Hútar hafa gert árás á bandarískt flugmóðurskip á Rauðahafi í dag. Bandaríkjamenn segja þá árás ekki hafa ógnað flugmóðurskipinu.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Joe Bidensdemókrati
  • Saanahöfuðborg
  • Sanaahöfuðborg

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 180 eindir í 11 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 11 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,49.