Sam­einuð gegn landa­mæra­of­beldi

Hópur meðlima No Borders Iceland og tónlistarfólks

2025-03-19 16:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Það er sárt horfa upp á sífellt harðari stefnu íslenskra stjórnvalda gagnvart fólki á flóttaen við látum það ekki gerast þegjandi. Það er kominn tími til rísa upp gegn þessari aðför og frekari áformum, sýna samstöðu og segja skýrt: Fólk á flótta á rétt á öryggi, reisn og réttlæti.

Nei við fangabúðumNei við rasisma!

Í stað þess virða réttindi fólks og taka opnum örmum á móti þeim sem leita verndar, er ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur feta sömu spor og forverar hennarmeð áform um fangabúðir þar sem börn geta verið færð í varðhald af lögreglu. Þetta er kerfisbundið ofbeldi sem við ætlum ekki sætta okkur við.

Brottvísanir eru ekki lausnþær eru ofbeldi

Fjöldi barna og fjölskyldna, sem hafa byggt sér líf hér, eiga á hættu á missa dvalarleyfi sitt og vera send aftur til þeirra landa sem þau flúðu, beinustu leið inn í stríðsátök, kúgun, mansal og neyð. Þetta er gert í nafni nýrra útlendingalaga sem allir þingflokkar lögðu blessun sína yfiren við segjum: er nóg komið!

Sameinuð stöndum við, sundruð föllum við

No Borders stendur fyrir samfélag sem nálgast fólk af virðingu, ekki af hörku og útilokun. Við höldum því okkar fyrsta viðburð í nýrri tónleikaröð, þar sem við stöndum saman gegn útlendingahatri og kynnum fjölbreytta rödd andófs og samstöðu. Saman getum við unnið því tryggja réttlátari og sanngjarnari heim fyrir öll, óháð uppruna eða stöðu.

Tónleikar gegn landamæraofbeldi

Fyrsti viðburðurinn í tónleikaröðinni Tónleikar gegn landamærum verður haldinn föstudaginn 21. mars á Smekkleysu klukkan 19:00. Tónleikaröðin fer fram annan hvern mánuð og er opin öllum sem vilja standa með fólki á flótta!

Nánari upplýsingar hér: https://fb.me/e/4xlbqkNrr

Höfundar eru meðlimir samtakanna No Borders Iceland og tónlistarfólk: Lukas Lilliendahl, Margrét Rut Eddudóttir, Gunnar Örvarsson, Elísabet María Hákonardóttir, Pétur Eggerz Pétursson, Alexandra Ingvarsdóttir, Kristján A. Reiners Friðriksson, Júlíana Kristín Jóhannsdóttir

Nafnalisti

  • Alexandra Ingvarsdóttirleikmaður Ragnaraka í íþróttafréttum RÚV
  • Elísabet María Hákonardóttir
  • Gunnar Örvarsson
  • Júlíana Kristín Jóhannsdóttir
  • Kristján A. Reiners Friðriksson
  • Kristrún Frostadóttirformaður
  • Lukasmyndlistarmaður með pólskan og þýskan bakgrunn, áhugasamur um söguskilning og frásagnarkraft mynda
  • Margrét Rut Eddudóttirlistakona
  • No Borderssamtak
  • No Borders Icelandfélagasamtökin
  • Pétur Eggerz Péturssonvörustjóri Overtune

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 331 eind í 17 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 16 málsgreinar eða 94,1%.
  • Margræðnistuðull var 1,68.