Veður

Utanríkisráðherra á Vestfjörðum

Ritstjórn Bæjarins besta

2025-03-17 09:27

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra er á Vestfjörðum í dag og á morgun. Hún kom keyrandi vestur í gær, hafði veður af því veðurspáin fyrir daginn væri ekki góð fyrir flug og fór því akandi frekar en taka þá áhættu láta veðrið spilla skipulagðri dagskrá.

Boðið verður upp á opna viðtalstíma á Ísafirði og Patreksfirði og þá fer fram opinn kvöldfundur á Ísafirði. Tímasetningar eru sem segir:

Opinn viðtalstími í Vestfjarðastofumánudaginn 17. mars kl. 16.0018.00

Opinn fundur á Dokkunni á Ísafirði-mánudaginn 17. mars kl. 20.00

Opinn viðtalstími á bæjarskrifstofu Vesturbyggðarþriðjudaginn 18. mars kl. 16.0018.00

Í stuttu samtali Bæjarins besta við Þorgerði Katrínu kom fram hjá henni hún myndi í dag hitta sveitarstjóra á norðanverðum Vestfjörðum og eiga með þeim fund. Þá væri á dagskránni fara í heimsókn í Kerecis á Ísafirði og hitta lögreglustjórann á Vestfjörðum. Sem utanríkis- og varnarmálaráðherra þá yrði auðvitað farið upp á Bolafjall í Ratsjárstöðina sem þar er og hitta starfsmenn stöðvarinnar.

Utanríkisráðherra hafði á orði vegirnir í Dölunum væru slæmir og sagði það væri verkefni ríkisstjórnarinnar finna meira í viðhald og framkvæmdir í vegakerfinu. Ástandið væri þannig það væri skilljanlegt kallað væri eftir því um allt land.

Þorgerður Katrín lafði áherslu á það væri eitt af verkefnum utanríkisráðherra gæta hagsmunum útflutningsatvinnuveganna og þyrfti leitast við sigla framhjá tollastríði sem myndi hafa alvarleg áhrif laxeldið og sjávarútveginn, ekki væri talað um ferðaþjónustuna.

Nafnalisti

  • Kerecisíslenskt lækningavörufyrirtæki
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttirformaður Viðreisnar og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 249 eindir í 13 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 11 málsgreinar eða 84,6%.
  • Margræðnistuðull var 1,66.