Stjórnmál

„Sjáum einn ein­stak­ling gjör­sam­lega mulinn mélinu smærra“

Jón Þór Stefánsson

2025-03-21 12:45

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist hafa fengið vita af máli Ásthildar Lóu Þórsdóttur, fráfarandi barna- og menntamálaráðherra, um tvöleytið í gær, nokkrum klukkutímum áður en hún tilkynnti um afsögn sína í gærkvöldi. mati Ingu er það Ásthildar meta og ákveða það hvort hún haldi áfram á þingi.

Inga segir það verði vonandi ákveðið seinna í dag, eða þá um helgina, hver taki við ráðuneyti Ásthildar. Hún hefði lítið sofið í nótt vegna málsins og síðan verið á fundi ríkisstjórnarinnar fram viðtölum við blaðamenn.

Hefðir þú skipað hana sem ráðherra hefðir þú vitað þetta?

Mér finnst þetta stórfurðuleg spurning. Hún hefði sennilega sjálf aldrei sjálf gefið kost á því ef útlitið hefði verið eins og það er í dag, sagði Inga.

Hetjuleg ákvörðun

Hún axlar hér ábyrgð. Hún telur hennar persónulegu mál eiga aldrei skyggja á okkar góða samstarf. Hún tekur mjög hetjulega ákvörðun, fordæmalausa ákvörðun. Við erum ekki vön sjá svona ákvörðun með eins skömmum tíma.

Inga sagðist ekki geta tjáð sig um það sem Ásthildur Lóa hafi sagt og gert fyrir 35 árum síðan.

Er henni stætt áfram sem þingmanni?

Það er bara algjörlega hennar mál meta það. Mér finnst hún sannarlega eiga erindi á Alþingi Íslendinga, sagði Inga. Hún tók jafnframt fram í kjördæmi Áshildar Lóu, Suðurkjördæmi, hafi enginn verið með eins mikið umboð og hún.

Mannlegur harmleikur

Ég er í rauninni harmi slegin. Ásthildur Lóa á allan minn huga núna, og ég sendi henni kærleikskveðjur. Þetta er mannlegur harmleikur sem hér er um ræða, sagði Inga.

Við fengum upplifa það hvernig við sjáum einn einstakling gjörsamlega mulinn mélinu smærra. Það var nákvæmlega það í gær þegar hæstvirtur mennta- og barnamálaráðherra brotnaði niður undan þessu álagi.

Inga sagðist ekki ætla krefja Ásthildi Lóu um afsögn á þingi. Hún sagðist þó hafa verið döpur yfir því Ásthildur Lóa hefði ekki upplýst hana um málið fyrr en í gær en skilji líka hennar vanlíðan. Hún hafi ekki treyst sér koma fram með málið. Það ekki auðvelt segja frá slíkum persónulegum hjartans málum.

Hún hafi sýnt hetjuskap, stigið fram sem leiðtogi og verið frábær barna- og menntamálaráðherra. Í því embætti hafi hún verið hrinda stórum verkefnum í framkvæmd og hún eigi sannarlega erindi á Alþingi Íslendinga.

Fylgst er með vendingum dagsins í vaktinni á Vísi.

Nafnalisti

  • Alþingi Íslendingamikilvægasta lýðræðisstofnun samfélags okkar
  • Áshildur Lóa
  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Inga Sælandformaður
  • Ingi SælandFlokkur fólksins

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 427 eindir í 30 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 28 málsgreinar eða 93,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,67.