Arnar eftir leikinn í kvöld: ,,Erfitt að horfa á þetta"
Victor Pálsson
2025-03-23 19:28
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, var súr á svip er hann ræddi við Stöð 2 Sport í kvöld eftir leik okkar manna við Kósovó.
Ísland er á leið í C deildina eftir 3–1 tap í kvöld en eftir tvær viðureignir töpuðu strákarnir 5–2.
Ísland komst yfir í kvöld með marki frá Orra Steini Óskarssyni en Kósovó bætti við þremur mörkum og vann að lokum nokkuð sannfærandi sigur.
„Tilfinningarnar eru slæmar, þær eru slæmar. Betra liðið vann í þessu einvígi og það eru engar afsakanir frá okkar hendi. Við sýndum ekki nægilega góða frammistöðu í fyrri hálfleik en það var meira hjarta og líf í seinni hálfleik,“ sagði Arnar.
„Það var erfitt að horfa á þetta í fyrri hálfleik, við vorum undir í öllu og þeir voru ‚ sharp.’ Þeir voru hungraðir í seinni boltana og fóru í návígin af meiri krafti. Þetta var gríðarlega svekkjandi.“
Arnar var svo spurður út í uppstillinguna í kvöld en hún kom þónokkrum á óvart.
„Mig langaði að sjá þessa stráka spila mismunandi stöður og þetta snýst líka svolítið um hugarfar þegar þú spilar stöðu sem þú ert ekki vanur að spila, hvað þú ert tilbúinn að læra þegar þér er hent út i djúpu laugina.“
„Í mínum huga eru þetta engin geimvísindi, ég er búinn að hugsa um þetta kerfi í fimm eða sex ár og ég reyni að útskýra þetta fyrir strákunum á nokkrum fundum. Það sást smá hvernig ég vildi spila í framtíðinni en ekki nógu oft.“
Nafnalisti
- Arnar Gunnlaugssonþjálfari
- Orri Steinn Óskarssonframherji
- Stöð 2 Sporthluti af Sportpakkanum
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 268 eindir í 13 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 12 málsgreinar eða 92,3%.
- Margræðnistuðull var 1,75.