EfnahagsmálViðskipti

Er heimurinn á barmi tollastríðs?

Ritstjórn Viðskiptablaðsins

2025-04-03 09:31

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Hérská viðskiptastefna Trump, sem hann hefur sett í forgrunn annarrar forsetatíðar sinnar í Hvíta húsinu, hafði neikvæð áhrif á hlutabréfamarkaði á fyrsta ársfjórðungi. Fjárfestar segja nýja tollana, sem kynntir voru á miðvikudag, vera meiri en búist hafði verið við.

Helstu evrópsku hlutabréfavísitölurnar hafa lækkað í kringum prósent í dag. Breska FTSE 100 hefur lækkað um 1,5%, þýska DAX um 1,63% og franska CAC 40 um 2,04%.

Financial Times veltir því upp morgun hvort Donald Trump hafi í gærkvöldi komið af stað viðskipta- og tollastríði í heiminum.

Þetta er verra en búist var við, það er ekki hægt fegra þetta, sagði Zhikai Chen, yfirmaður hlutabréfa á nýmarkaðssvæðum hjá BNP Paribas Asset Management.

Trump sagði 10 prósenta tollur myndi gilda fyrir nær allar innflutningsvörur til Bandaríkjanna frá og með 5. apríl, og tugir ríkja, þar á meðal Kína, myndu sæta frekari gagnkvæmum tollum frá og með 9. apríl.

Í ljósi áhyggja fjárfesta um mögulegt tjón á bandarísku hagkerfi vegna tollanna, hófu kaupmenn veðja á möguleika á fjórðu stýrivaxtalækkun Seðlabanka Bandaríkjanna á árinu. Fram miðvikudegi höfðu fjárfestar aðeins gert ráð fyrir þremur lækkunum.

Ákvarðanir Trump um tolla á einstök lönd byggja ekki á hversu háa tolla þau lönd leggja á Bandaríkin, heldur eru tollarnir hærri eftir því sem viðskiptahalli Bandaríkjanna er meiri við viðkomandi land.

Nafnalisti

  • BNP Paribas Asset Management
  • CAC 40frönsk hlutabréfavísitala
  • DAXþýsk hlutabréfavísitala
  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Financial Timesbreskt dagblað
  • FTSE 100bresk hlutabréfavísitala
  • Trumpkjörinn forseti Bandaríkjanna
  • Zhikai Chen

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 229 eindir í 10 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 10 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,74.