Stjórnmál

Inga: „Tekur hetjulega ákvörðun“

Ritstjórn mbl.is

2025-03-21 12:49

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins og félags- og húsnæðismálaráðherra, segir ákvörðun Ásthildar Lóu Þórsdóttur, fráfarandi mennta- og barnamálaráðherra, segja af sér hafi verið hetjuleg og persónuleg mál hennar eigi ekki skyggja á hana.

Tekur hetjulega ákvörðun, sagði hún á blaðamannafundi oddvita ríkisstjórnarinnar núna rétt í þessu um afsögn Ásthildar.

Inga sagðist varla vera búin átta sig á þessu öllu, en hún væri harmi slegin. Sagði hún Ásthildi Lóu eiga hug sinn allan og málið væri mannlegur harmleikur.

Sagði Ásthildi vera mulin mélinu smærra

Við fengum upplifa hvernig við fáum sjá einn einstakling mulinn mélinu smærra, sagði hún um umfjöllun um málið og Ásthildur hafi ákveðið segja af sér.

Ítrekaði Inga Ásthildur væri sigurvegari síðustu kosninga í Suðurkjördæmi og það væri hennar meta hvort hún ætlaði halda áfram sem þingmaður, en hún færi ekki fram á hún segði af sér. Sagði Inga sér þætti Ásthildur sannarlega eiga erindi á þing.

Inga sagði jafnframt hún myndi ræða við sitt fólk núna og ákvörðun um hver yrði næsti ráðherra myndi líklega liggja fyrir síðar í dag eða í seinasta lagi um helgina.

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Inga Sælandformaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 214 eindir í 9 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 8 málsgreinar eða 88,9%.
  • Margræðnistuðull var 1,64.