Stjórnmál

Bjóða peninga fyrir undirskriftir

Ritstjórn mbl.is

2025-03-21 12:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

America Pac, herferðarhópur Elon Musks, segist munu gefa kjósendum í Wisconsin-ríki 100 dollara, eða rúmlega 13.000 krónur, setji þeir nafn sitt á undirskriftarlista sem er gegn aðgerðasinnuðum dómurum.

Herferðarhópurinn var stofnaður til styðja við Donald Trump Bandaríkjaforseta í kosningunum vestanhafs á síðasta ári.

Þá kjósendur sömu upphæð í hvert skipti sem þeir vísa á aðra sem einnig setja nafn sitt á listann.

Eru kjósendur hvattir til skrifa undir fyrir 1. apríl, en þá verður kosinn nýr hæstaréttardómari í ríkinu.

Alríkisdómarar gert Trump erfitt fyrir

Hafa alríkisdómarar í Bandaríkjunum gert Trump erfitt fyrir koma stefnumálum sínum í gegn síðan hann tók við embætti forseta.

T.a.m. bannaði alríkisdómarinn James E. Boasberg Trump-stjórninni notast við tvö hundruð ára gömul stríðslög til senda útlendinga úr landi 15. mars. Þrátt fyrir það sendu Bandaríkin rúmlega 200 meinta glæpamenn til El Salvador.

Á þriðjudag kallaði Trump Boasberg m.a. vandræðagemling og æsingamann.

Eiga túlka lög eins og þau eru skrifuð

Styður America Pac við íhaldssama frambjóðandann Brad Schimel í kosningunni um dómarasætið.

Dómarar ættu túlka lög eins og þau eru skrifuð, ekki endurskrifa þau svo þau henti þeirra persónulegu eða pólitísku stefnum, skrifar herferðarhópurinn í færslu á X.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hópurinn býður kjósendum peninga fyrir undirskrift en sérfræðingar hafa talið slíkt útspil ólöglegt.

Nafnalisti

  • America Pac
  • Brad Schimel
  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • El SalvadorMið-Ameríkuríkinu
  • Elon Musksauðkýfingur
  • James E. Boasberg Trump-stjórninni

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 224 eindir í 13 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 12 málsgreinar eða 92,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,78.