Stjórnmál

Hvað má læra af Covid, börn í vanda og ríkisbuddan í Sprengi­sandi

Samúel Karl Ólason

2025-03-16 09:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Sprengisandur er á sínum stað klukkan 10 þar sem Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi ræðir samfélagsmálin við góða gesti.

Fyrsti gestur Kristjáns í dag er Magnús Gottfreðsson, prófessor og yfirlæknir, sérfræðingur í smitsjúkdómum, og mun hann ræða faraldur Covid 19 en í dag eru fimm ár frá því fyrsta samkomubannið tók gildi. Voru viðbrögðin rétt á sínum tíma, hvaða lærdóm draga af heimsfaraldrinum?

Næst mæta þær Ingibjörg Isaksen og Kolbrún Baldursdóttir, alþingismenn, og munu ræða leiðir til koma til móts við vanda barna með alvarlegan og fjölþættan vanda í kjölfar frétta undanfarinna vikna.

Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra mætir því næst og fer yfir stöðu efnahagsmála og sýn sína á ríkisfjármálin á næstunni.

Þá mæta þau Vilhjálmur Árnason, alþingismaður og formaður Stjórnskipunar og eftirlitsnefndar Alþingis, og Helga Vala Helgadóttir, fyrrverandi alþingismaður og fyrrverandi formaður sömu nefndar. Þau munu ræða pólitísk tíðindi þessara daga, eins og vantraust menntamálaráðherra á dómskerfinu en ekki síst verksvið nefndarinnar sem ætlar taka fyrir erindi utan úr í svokölluðu byrlunarmáli.

Hægt er fylgjast með þættinum í spilaranum hér að neðan.

Nafnalisti

  • Covid 19sjúkdómur
  • Daði Már Kristóferssonfráfarandi forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands
  • Helga Vala Helgadóttirlögmaður og fyrrverandi þingkona Samfylkingarinnar
  • Ingibjörg Isaksenþingmaður Framsóknarflokksins
  • Kolbrún Baldursdóttirborgarfulltrúi Flokks Fólksins
  • Kristján Kristjánssonþáttastjórnandi Sprengisands
  • Magnús Gottfreðssonprófessor
  • Vilhjálmur Árnasonþingmaður Sjálfstæðisflokksins

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 178 eindir í 8 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 8 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,57.