Stjórnmál

„Ég hef engin sam­skipti haft við fjöl­miðla vegna þessa máls“

Magnús Jochum Pálsson

2025-03-22 19:43

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki hafa haft samskipti við fjölmiðla vegna máls Ásthildar Lóu Þórsdóttur, fráfarandi barnamálaráðherra. Hún telur nær þrautreyndir smjörklípumenn kalli eftir viðbrögðum úr eigin röðum.

Áslaug birti Facebook-færslu um málið upp úr 19 og svaraði þar Össuri Skarphéðinssyni, fyrrverandi formanni Samfylkingarinnar, sem hafði síðdegis kallað eftir rannsókn á aðkomu Áslaugar í málinu.

Flestir sjá í gegnum samsæriskenningar og tilraunir til þess láta vandræði ríkisstjórnarinnar snúast um Sjálfstæðisflokkinn En eins og oft áður treysta margir á þá aðferð þegar vandræðin hrannast upp í eigin garði, skrifar hún í færslunni um skrif Össurar.

Mér er ljúft og skylt greina frá því ég hef engin samskipti haft við fjölmiðla vegna þessa máls, segir Áslaug.

Hún segir hins vegar rétt Ólöf Björnsdóttir hafi haft samband við sig með tölvupósti þann 14. mars síðastliðinn. Ólöf hafi óskað eftir því Áslaug myndi hringja í sig vegna mennta- og barnamálaráðherra. Ég hafði ekki samband við Ólöfu og hef ekki enn gert, skrifar Áslaug.

Margur heldur mig sig

Áslaug segir broslegt þrautreyndir smjörklípumenn eins og Össur Skarphéðinsson og Kristján Möller bíði spenntir eftir viðbrögðum frá sér vegna málsins. Þar sannist hið fornkveðna: margur heldur mig sig.

Væri ekki nær fyrir smjörklípuherrana kalla eftir viðbrögðum úr eigin röðum eða frá Viðreisnhvers þingmenn sitja með Flokki fólksins í ríkisstjórn? Fremur en amast út í hinn fallna formannskandídat eins og þeir orða það svo smekklega? spyr Áslaug í færslunni.

En fyrst hún látin bregðast sérstaklega við enn öðru vandræðamáli ríkisstjórnarinnar segir Áslaug það ekkert nema eðlilegt spurningar vakni þegar klúður á klúður ofan einkennir fyrstu 100 daga stjórnarinnar. Þar af nægu taka og eðlilegt menn hrökkvi þess vegna í kút og reyni bæta böl sitt með benda á aðra.

Einstaklingur svikinn um trúnað fái ráðherra í óumbeðið kvöldkaffi

Spurningin sem eftir stendur er hver það er sem ber raunverulega ábyrgð á því einstaklingur, sem hefur samband við forsætisráðherra í góðri trú, er svikinn um trúnað og endar með annan ráðherra í ríkisstjórn hjá sér í óumbeðnu kvöldkaffi eftir hafa setið undir símtalaflóði frá ráðherranum dagana á undan, skrifar hún.

Áslaug segir jafnframt sami fráfarandi ráðherra hafi staðfest það hafa fengið upplýsingar um Ólöfu frá aðstoðarmanni forsætisráðherra nokkrum dögum áður en hún hafi fengið tölvupóst sendan.

Umræðan á snúast um ábyrgð en ekki útúrsnúninga. Það lærist smjörklípustrákunum líklega seint úr þessu, skrifar Áslaug lokum.

Nafnalisti

  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttirnýsköpunarráðherra
  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Kristján Möllerþingmaður Samfylkingarinnar
  • Ólöf Björnsdóttir
  • Össur Skarphéðinssonþingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi utanríkisráðherra

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 459 eindir í 20 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 15 málsgreinar eða 75,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,68.