Sæki samantekt...
Narfi Snorrason hefur verið ráðinn í starf forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar Kviku banka.
Í fréttatilkynningu frá Kviku segir að Narfi komi til Kviku frá JBT Marel, þar sem hann hafi starfað frá árinu 2015, síðast sem forstöðumaður stefnumótunar- og þróunar.
Narfi hafi mjög víðtæka reynslu úr viðskiptalífinu en hann hafi starfað um nokkurra ára skeið í Kaupmannahöfn; fyrst sem sérfræðingur á rannsóknar- og þróunarsviði hjá Ørsted, síðar í leveraged finance hjá Glitni og loks sem verkefnastjóri hjá Nordic M & A. Við heimkomu hafi Narfi ráðið sig sem verkefnastjóra í fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka áður en hann hóf störf hjá Marel, síðar JBT Marel. Hjá Marel hafi Narfi leitt teymi stefnumótunar- og þróunar og komið að fjölmörgun yfirtökum og stefnumarkandi verkefnum á undanförnum misserum, nú síðast samruna JBT og Marel. Narfi muni hefja störf hjá Kviku banka 1. maí næstkomandi.
Narfi sé með M.Sc. í orkuverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet, MBA frá Háskólanum í Reykjavík og B.Sc. í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands.
Nafnalisti
- Danmarks Tekniske UniversitetDTU
- JBTbandarískt fyrirtæki
- JBT Marelbert nafn
- Narfi Snorrason
- Nordic M
- Ørsteddanskt orkufyrirtæki
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 157 eindir í 6 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 4 málsgreinar eða 66,7%.
- Margræðnistuðull var 1,68.