Íþróttir

Besta-spáin 2025: Litað út fyrir

Ingvi Þór Sæmundsson

2025-04-02 10:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Stjörnunni 5. sæti Bestu deildar karla í sumar.

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir venju fyrir um gengi liðanna í Bestu deild karla með árlegri spá sinni fyrir mótið. Keppni í deildinni hefst með leik Íslandsmeistara Breiðabliks og Aftureldingar laugardaginn 5. apríl.

Íþróttadeild spáir Stjörnunni 5. sæti Bestu deildarinnar í sumar og liðið fari niður um eitt sæti frá því á síðasta tímabili.

Eftir frábært gengi eftir Jökull Elísabetarson tók við Stjörnunni eftir sex umferðir tímabilið 2023 voru Garðbæingar brokkgengari í fyrra. Þeir áttu glimrandi leiki en duttu hressilega niður þess á milli, sérstaklega framan af sumri. Stjarnan endaði hins vegar tímabilið á jákvæðum nótum. Liðið tapaði aðeins einum af síðustu tíu leikjum sínum og endaði í 4. sæti. Það dugði þó ekki til komast í Evrópukeppni þar sem KA varð bikarmeistari.

Jökull fer sínar eigin leiðir í þjálfun og er óhræddur lita út fyrir. Hann gerir miklar breytingar á milli leikja og tilraunamennskan er mikil. Það getur verið kosturStjörnuliðið er mjög sveigjanlegt og eflaust erfitt greinaen það getur líka verið erfitt upp stöðugleika.

Herra Stjarnan, goðsögnin í Garðabænum, Daníel Laxdal, lagði skóna á hilluna eftir síðasta tímabil og sömu sögu er segja af Hilmari Árna Halldórssyni og Þórarni Inga Valdimarssyni. Óli Valur Ómarsson stökk síðan yfir til Breiðabliks og Róbert Frosti Þorkelsson, sem lagði upp níu mörk á síðasta tímabili, fór í atvinnumennsku. Mikil reynsla er því farin úr Stjörnuliðinu auk þess sem tveir af bestu ungu leikmönnum liðsins eru horfnir á braut. Skörð þeirra verða ekki fyllt svo glatt.

Stjarnan plokkaði skrautfjaðirnar af Vestra og fékk Andra Rúnar Bjarnason og Benedikt Warén. Alex Þór Hauksson sneri aftur í Stjörnuna eftir eitt ár í KR og Samúel Kári Friðjónsson og Þorri Mar Þórisson eru komnir heim eftir mislanga dvöl í atvinnumennsku.

Kastljósið verður á Samúel sem spilaði sem atvinnumaður í rúman áratug og var í HM-hópi Íslands 2018. Hann kom sér í fréttirnar fyrir ljóta tæklingu í leik gegn KR í Lengjubikarnum en ætti nýtast Stjörnuliðinu vel. Einnig verður gaman sjá hvernig Benedikt spjarar sig í Garðabænum eftir góð ár fyrir vestan. Þorri fyllir stöðu hægri bakvarðar og Andri Rúnar veitir Emil Atlasyni samkeppni um framherjastöðuna. Svo gæti Jökull notað þá eitthvað saman.

Emil hefur verið í miklum ham undanfarin þrjú tímabil og skorað samtals 42 mörk í Bestu deildinni. Svo er Stjarnan með gnótt af spennandi miðju- og kantmönnum. þar meðal annars nefna Guðmund Baldvin Nökkvason, Hauk Örn Brink, Benedikt, Örvar Eggertsson og Adolf Daða Birgisson.

Stjörnuliðið er gríðarlega vel skipað og Jökull hefur úr mörgum góðum leikmönnum spila. Helsta spurningarmerkið er kannski miðvarðastaðan en Stjörnumenn vonast til Sigurður Gunnar Jónsson fylgi eftir góðri spilamennsku undir lok síðasta tímabils. Eftir hafa verið á bekknum hjá Lengjudeildarliði Leiknis kom hann aftur í Garðabæinn um mitt mót. Sigurður spilaði tíu leiki í Bestu deildinni í fyrra. Stjarnan vann sex þeirra, gerði tvö jafntefli, tapaði tveimur og hélt fjórum sinnum hreinu.

Ekki vantar möguleikana og hæfileikana í Stjörnuliðið og það eru forsendur til árangri. Lágmarkskrafan hlýtur vera Evrópusæti og það er vel gerlegt. Titilbarátta er frekar langsótt en sumarið í Garðabænum getur sannarlega orðið eftirminnilegt.

Nafnalisti

  • Adolf Daði BirgissonStjarnan
  • Alex Þór HaukssonStjörnumaður
  • Andri Rúnar Bjarnasonframherji
  • Benedikt Warénleikmaður Breiðabliks
  • Daníel LaxdalStjarnan
  • Emil Atlasonknattspyrnumaður
  • Guðmundur Baldvin NökkvasonStjarnan
  • Haukur Örn Brink
  • Hilmar Árni Halldórssonleikmaður Stjörnunnar
  • Jökull Elísabetarsonþjálfari Stjörnunnar
  • Leikniríþróttafélag
  • Óli Valur Ómarssonhægri bakvörður Stjörnunnar og ein skærasta stjarna Bestu deildar karla í fótbolta
  • Örvar EggertssonHKingur
  • Róbert Frosti ÞorkelssonStjarnan
  • Samúel Kári Friðjónssonlandsliðsmaður
  • Sigurður Gunnar Jónsson
  • Stöðvar 2 Sports
  • Þórarinn Ingi Valdimarssonleikmaður Stjörnunnar
  • Þorri Mar Þórissonleikmaður KA

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 548 eindir í 34 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 33 málsgreinar eða 97,1%.
  • Margræðnistuðull var 1,56.