Slys og lögreglumál

Það læra börnin sem fyrir þeim er haft

Sigurður Örn Hilmarsson

2025-03-14 13:03

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Fyrir ekki svo löngu ræddi ég við hóp ungmenna um ýmislegt sem hafði drifið á daga þeirra. Uppvaxtarárin geta verið alls konar. Í grunninn eru þetta bara litlar manneskjur sem eru feta sig í lífinu og mæta ýmsum ógnum og áskorunum. Ég varð hins vegar hissa þegar þau sögðu mér: Við treystum ekki lögreglunni. Hvernig stendur á því þessi hópur hafði komist svona niðurstöðu hafandi hingað til aldrei haft nein sérstök kynni af lögreglunni. Kannski í mjög einfölduðu máli, hvar læra börnin okkar þetta?

Í byrjun vikunnar fannst maður í Gufuneskirkjugarði sem lést skömmu síðar vegna áverka sem honum voru sögn veittir eftir fjárkúgun og ofbeldi. Af fréttum dæma tilheyra sakborningar málsins svokölluðum tálbeituhópi, sem stendur saman af ungu fólki sem hafa á undanförnum vikum tekið sér lögin í eigin hendur og útdeilt refsingum í nafni þess sem stundum er kallað hefndarréttlæti (e. vigilante justice). Tilgangurinn er látinn helga meðalið. Afleiðingarnar geta verið hræðilegareins og birtist í þessu máli.

Í lok vikunnar lýsti Ásthildur Lóa Þórsdóttir, barnamálaráðherra, því svo yfir eftir hafa tapað bótamáli gegn íslenska ríkinu hún væri löngu hætt gera ráð fyrir réttlæti hjá íslenskum dómstólum.

Auðvitað eru þetta tveir aðskildir atburðir en allt verður til úr einhverju. Það skiptir máli hvernig fólk sem á vita betur talar um réttarkerfið okkar. Þar eru tapsárir ráðherrar síst undanskildir.

Dómsmál eru í flestum tilfellum flutt fyrir opnum tjöldum og röksemdir dómstóla birtar opinberlega. Þetta er grundvallarregla í lýðræðisríki sem þjónar þeim tilgang tryggja gagnsæjan og réttlátan framgang réttvísinnar. Telji ráðherrann sig hafa eitthvað um dómsniðurstöðuna segja ber honum gæta þess tjáningin samræmist stöðu hans í samfélaginu eða einfaldlega leita endurskoðunar með áfrýjun. Palladómar um réttarkerfið í heild sinni frá ráðamönnum þjóðarinnarsem einhver kann treystagrafa undan trausti og geta ýtt undir glundroða.

Höfundur er lögmaður.

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 341 eind í 19 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 18 málsgreinar eða 94,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,57.