Frá JBT Marel til Kviku

Ritstjórn Viðskiptablaðsins

2025-04-02 10:14

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Narfi Snorrason hefur verið ráðinn í starf forstöðumanns Fyrirtækjaráðgjafar Kviku banka. Hann kemur frá JBT Marel þar sem hann starfaði frá árinu 2015, síðast sem forstöðumaður stefnumótunar- og þróunar.

Narfi starfaði einnig um nokkurra ára skeið í Kaupmannahöfn; fyrst sem sérfræðingur á Rannsóknar- og þróunarsviði hjá Ørsted, síðar í Leveraged Finance hjá Glitni og loks sem verkefnastjóri hjá Nordic M & A.

Við heimkomu réð Narfi sig sem verkefnastjóra í fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka áður en hann hóf störf hjá Marel, síðar JBT Marel. Hjá Marel hefur Narfi leitt teymi stefnumótunar- og þróunar og komið fjölmörgun yfirtökum og stefnumarkandi verkefnum á undanförnum misserum, síðast samruna JBT og Marel.

Narfi er með M.Sc. í orkuverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet, MBA frá Háskólanum í Reykjavík og B.Sc. í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands.

Narfi hefur störf hjá Kviku banka 1. maí næstkomandi.

Nafnalisti

  • Danmarks Tekniske UniversitetDTU
  • JBTbandarískt fyrirtæki
  • JBT Marelbert nafn
  • Leveraged Finance
  • Narfi Snorrason
  • Nordic M
  • Ørsteddanskt orkufyrirtæki

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 136 eindir í 7 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 5 málsgreinar eða 71,4%.
  • Margræðnistuðull var 1,65.