Þarf að auka varnir á norðurslóðum

Ritstjórn mbl.is

2025-03-28 20:19

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, fagnar því JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, hafi tekið skýrt fram í ræðu sinni á Grænlandi Bandaríkjamenn virði sjálfsákvörðunarrétt Grænlendinga. Það skipti máli því væri slegið föstu.

Frederiksen birti færslu á Facebook-síðu sinni fyrir skömmu, þar sem hún tók fram Danir hefðu verið góðir bandamenn gagnvart Bandaríkjunum og öllum öðrum þjóðum í Atlantshafsbandalaginu. Þá hefðu Danir hefðu stóraukið útgjöld sín til varnarmála.

Í mörg ár höfum við staðið hlið við hlið Bandaríkjamanna í mörgum erfiðum aðstæðum. Því er það ekki réttlætanlegt hvernig varaforsetinn talar um Danmörku, sagði Frederiksen í færslu sinni, en Vance hefur ítrekað lýst því yfir Danir hafi ekki verið góðir bandamenn og þeir hafi vanrækt varnarskyldur sínar gagnvart Grænlandi og norðurslóðum.

Sagði Frederiksen það hins vegar rétt setja þyrfti varnarmál norðurslóða á hærri stall. Danir væru þar styrkja sig með auknu eftirliti og nýjum skipum, drónum og gervihnöttum.

Benti hún á Grænland væri hluti af NATO og því þyrfti bandalagið einnig stórauka viðveru sína á norðurslóðum.

Við erum tilbúin, dag sem nótt, til vinna með Bandaríkjamönnum. Slíkt samstarf þarf grundvallast á hinum nauðsynlegu alþjóðlegum leikreglum. Og í auknum vörnum fyrir alla hluta NATO-bandalagsins, sagði Frederiksen í færslu sinni.

Nafnalisti

  • Facebook-síðufylgdi pistli um sumarskrifstofu samgönguráðherrans Ketil Solvik-Olsen, þegar lesandi benti á í athugasemd að skrifstofunni, fjölsæta bifreið með sportlegum reiðhjólum áfestum, var einmitt lagt á akrein sem ætluð er þeim síðarnefndu
  • JD Vance
  • Mette Frederiksenforsætisráðherra

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 232 eindir í 12 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 10 málsgreinar eða 83,3%.
  • Margræðnistuðull var 1,67.