ViðskiptiStjórnmál

Ná saman um hundruð milljarða upp­gjör ÍL-sjóðs

Ritstjórn Viðskiptablaðsins

2025-03-10 09:33

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Viðræðunefnd fjármálaráðherra og ráðgjafar 18 lífeyrissjóða hafa saman mótað tillögur um uppgjör íbúðabréfa (HFF-bréfa) sem greiða mun fyrir slitum ÍL-sjóðs, gamla Íbúðalánasjóðs. Verkefnisstjórn ÍL-sjóðs hefur lagt til við fjármálaráðherra unnið verði framgangi tillögunnar.

Með þessu uppgjöri er gert upp fullu við eigendur bréfanna, sem í flestum tilfellum eru lífeyrissjóðir landsins, og bundinn endir á óvissu tengdri uppgjöri á ríkisábyrgð á skuldum ÍL-sjóðs, með hagfelldum hætti fyrir alla hagsmunaaðila, segir í tilkynningu fjármálaráðuneytisins.

Gefa út ríkisskuldabréf fyrir 540 milljarða

Í tillögunum felst kröfur verða efndar með afhendingu ríkisskuldabréfa, annarra verðbréfa og reiðufjár í gjaldeyri og íslenskum krónum. Með þessu verði ÍL-sjóði gert kleift standa við skuldbindingar sínar gagnvart eigendum HFF-bréfanna og öðrum kröfuhöfum, því er segir í fréttatilkynningu.

Í tengslum við uppgjörið gefur ríkissjóður út ríkisskuldabréf fjárhæð 540 milljarða króna þar sem m.a. er gerð upp eldri skuld ríkissjóðs við ÍL-sjóð fjárhæð 238 milljarða króna auk þess sem ábyrgð ríkissjóðs á skuldbindingum ÍL-sjóðs er gerð upp.

Virði HFF-bréfanna í uppgjörinu er metið 651 milljarður króna. Í uppgjörstillögunum felst ÍL-sjóður og íslenska ríkið afhendi kröfuhöfum áðurnefnd ríkisskuldabréf andvirði 540 milljarðar króna, önnur verðbréf í eigu ÍL-sjóðs andvirði 38 milljarðar, gjaldeyri og reiðufé andvirði 73 milljarðar.

Ríkissjóður mun taka við hluta af vaxtaberandi eignum ÍL-sjóðs, samtals fjárhæð um 222 milljarðar króna en þar er um ræða húsnæðislánasafn ÍL-sjóðs auk annarra verðbréfa.

Tillögur ráðgjafa og viðræðunefndar verða lagðar fyrir fund skuldabréfaeigenda til samþykktar, en samþykki 75% kröfuhafa þarf til. Reiknað er með fundur fari fram í apríl. Verði tillögurnar samþykktar mun fjármálahagsráðherra í framhaldi sækja heimild til Alþingis til ljúka uppgjörinu með frumvarpi til fjáraukalaga.

Með þessum tillögum skapast grundvöllur til ljúka langvinnu úrlausnarefni ríkissjóðs en viðræður um málið hafa staðið yfir í rúmlega eitt ár, segir í tilkynningu frá hópi lífeyrissjóða.

Fjármálaráðuneytið áætlar aðgerðin skili jákvæðu greiðsluflæði til ríkissjóðs á næstu árum og skuldahlutföll A-hluta ríkissjóðs muni loknum öllum ráðstöfunum vegna uppgjörsins batna um a.m.k. 5% af vergri landsframleiðslu. Ríkisábyrgðir muni jafnframt lækka um 88% miðað við stöðu í árslok 2024. Verðbréf, sem ríkissjóður hefur gefið út eða ábyrgst, munu við uppgjör HFF bréfanna lækka um 111 ma.kr. markaðsvirði.

Það er virkilega ánægjulegt aðilar hafa náð saman um tillögu samkomulagi í málefnum ÍL-sjóðs. Hljóti tillagan samþykki kröfuhafa og Alþingis næst ljúka erfiðu máli með hagsmuni allra aðila leiðarljósi. Tillagan byggir á viðræðum sem hafa átt sér stað í rúmlega eitt ár þar sem unnið hefur verið af kostgæfni ljúka málinu með farsælum hætti. Full ástæða er til undirstrika mikilvægi þess viðræðunefndirnar náðu saman í þessu snúna máli. Kröfuhafar ÍL-sjóðs, sem eru í langflestum tilfellum lífeyrissjóðir, gert upp fullu og óvissu um málefni sjóðsins er eytt. Þá nær ríkissjóður stöðva skuldasöfnun ÍL-sjóðs sem er stórt hagsmunamál fyrir allan almenning, segir Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra .

Nafnalisti

  • A-hlutaEBITDA
  • Daði Már Kristóferssonfráfarandi forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands
  • ÍL-sjóðurútgefandi

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 513 eindir í 23 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 22 málsgreinar eða 95,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,62.