Sæki samantekt...
Jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaga hélt áfram í nótt en hefur farið minnkandi frá fyrri dögum.
Í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands segir að virknin sé nokkuð jafndreifð um kvikuganginn, frá Stóra Skógfelli í suðri og norður fyrir Keili. Dýpi skjálfta er ennþá nokkuð stöðugt milli 4 og 6 km.
Gikkskjálftahrina við Trölladyngju
Klukkan 17.30 í gær hófst kröftug hrina gikkskjálfta við Trölladyngju norðvestan við Kleifarvatn. Stærsti skjálftinn sem mældist var 3.9 að stærð rétt fyrir kl. 23 en alls mældust 5 skjálftar yfir 3 að stærð síðan hrinan hófst klukkan hálf sex.
Fjölmargar tilkynningar bárust Veðurstofunni um að skjálftarnir hefðu fundist í byggð. Eftir miðnætti hefur hægt og bítandi dregið úr fjölda gikkskjálfta á svæðinu.
Nafnalisti
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 114 eindir í 8 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 8 málsgreinar eða 100,0%.
- Margræðnistuðull var 1,68.