Stjórnmál

Er Trump með plan? Er heimsstyrjöld í aðsigi?

Ritstjórn mbl.is

2025-03-14 13:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Á sama tíma og Donald Trump leggur tolla á nágrannaríki Bandaríkjanna, Kína og Evrópusambandið reynir hann toga Úkraínumenn og Rússa samningaborðinu. Hann kallar eftir friði í Evrópu.

Oft virðast aðgerðir hans byggja á fálmkenndum yfirlýsingum og lítt úthugsuðum hugmyndum. En er það svo? Þessari spurningu og fleirum verður svarað í Spursmálum í dag.

Þátturinn er sýndur í spilaranum hér að neðan og hefst klukkan 14.

Er Trump í ruglinu?

Tryggvi Hjaltason nam hernaðar- og varnarmálafræði í Bandaríkjunum og þá lauk hann einnig þriggja ára liðsforingjaþjálfun hjá Bandaríkjaher. Hann hefur teiknað upp ólíkar sviðsmyndir um það hvað Trump hyggist fyrir og hvaða árangri hann hefur í hyggju þegar kemur málefnum Úkraínu, NATO en ekki síst baráttunni um hernaðarlega yfirburði á heimssviðnu. Þar gera Kínverjar sig sífellt líklegri til þess skáka Bandaríkjunum.

Fáum við lægri vexti á húsnæðislánin í ESB?

Dr. Ragnar Árnason, prófessor emeritus í hagfræði við Háskóla Íslands hefur að undanförnu fjallað ítarlega um kosti og galla þess Ísland gengi í Evrópusambandið. Hefur hann t.d. bent á það tómt mál tala um eina tiltekna húsnæðisvexti á evrusvæðinu. Þar muni miklu milli ólíkra hagkerfa.

Hefur hann tekist nokkuð hart á við Dag B. Eggertsson um þessi mál. Var þeim báðum boðið í þáttinn, bæði í þessari viku og hinni fyrri og þáði Ragnar boðið.

Hvað ungur nemur gamall temur

Í fréttum vikunnar er rætt við tvo alþingismenn sem bera sitthvorn heiðurstitilinn. Jónína Björk Óskarsdóttir er elsti núverandi þingmaðurinn en hún situr á þingi fyrir Flokk fólksins. Ingvar Þóroddsson er þingmaður Viðreisnar og er hann yngstur þingmanna sem sitja.

Sneisafullur þáttur af áhugaverðu efni og skemmtilegum viðmælendum. Á dagskrá á mbl.is klukkan 14 í dag.

Nafnalisti

  • Dagur B. EggertssonBorgarstjóri
  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Ingvar ÞóroddssonBS í rafmagns- og tölvunarverkfræði
  • Jónína Björk Óskarsdóttirgjaldkeri flokksins
  • Ragnar Árnasonprófessor emeritus í hagfræði við Háskóla Íslands
  • Tryggvi Hjaltasonformaður Hugverkaráðs

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 291 eind í 22 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 21 málsgrein eða 95,5%.
  • Margræðnistuðull var 1,46.