Rússar segja að starfsfólki íslenska sendiráðsins hafi ekki verið ógnað

Iðunn Andrésdóttir

2025-03-21 09:44

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Maria Zakharova, talskona rússneska utanríkisráðuneytisins, skellti upp úr á blaðamannafundi í gær þegar hún var spurð hvort starfsfólki íslenska sendiráðsins í Moskvu hefði verið ógnað.

Leyfðu mér segja þér satt. Þetta er auðvitað lygi, það liggur fyrir, sagði Zakharova.

Morgunblaðið greindi fyrst frá og vísaði í frétt Pravda.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, greindi fréttastofu frá því á dögunum starfsfólki íslenska sendiráðsins hefði verið ógnað með ýmsum hætti og ekki hefði verið hægt tryggja öryggi þess í Moskvu. Það hefði átt þátt í því sendiráðinu var lokað en þó ekki verið meginástæða þess.

Ísland þjáist af Rússafóbíu

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, núverandi utanríkisráðherra, tók undir með Þórdísi og sagði friðhelgi starfsfólks sendiráðsins hefði verið gróflega brotin.

Spurð um ummæli núverandi og fyrrverandi utanríkisráðherra sagði Zakharova augljóst þær hefðu gert það til þess sýna hollustu sína við Atlantshafsbandalagið og andrússneska stefnu Vesturlandanna.

Ákvörðunin um loka sendiráðinu hefði valdið óbætanlegu tjóni á samstarfi þjóðanna enda ljóst Ísland þjáðist af Rússafóbíu og styddi nýnasista í Kænugarði.

Jafnframt sagði hún framt þeim hefðu ekki borist neinar kvartanir frá íslenskum stjórnvöldum um ógnanir eða hótanir í garð íslenska sendiráðsins eða starfsfólks þess.

Nafnalisti

  • Maria Zakharovatalskona rússneska utanríkisráðuneytisins
  • Pravdaveitinga- og skemmtistaðarins
  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttirnýsköpunarráðherra
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttirformaður Viðreisnar og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 213 eindir í 11 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 11 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,56.