Menning og listir

Rislítil ástar­saga

Símon Birgisson

2025-04-03 07:12

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Sýningin Fjallabak byggir á hinni stórkostlegu bíómynd Brokeback Mountain sem sló í gegn árið 2005 með stórleikurunum Heath Ledger og Jake Gyllenhaal í aðalhlutverkum. Myndin tapaði í baráttunni um Óskarinn fyrir myndinni Crash (sem er flestum gleymd) en Brokeback Mountain hefur lifað áfram bæði sem ópera (, sem ópera) og sem leiksýning.

Leikgerðin eftir Ashley Robinson kemur frá Bretlandi en er sett upp í aðeins breyttri útgáfu (og lengri) í Borgarleikhúsinu. Ég er ekki viss um allar breytingarnar hafi verið til hins betra því sýningin nær aldrei alveg flugi þrátt fyrir góða spretti og kröftuga aðalleikara.

FjallabakBorgarleikhúsið

Frumsýning: 28. mars 2025

Höfundur: Ashley Robinson. Leikstjórn: Valur Freyr Einarsson. Leikmynd: Axel Hallkell Jóhannesson. Leikarar: Hjörtur Jóhann Jónsson, Björn Stefánsson, Esther Talía Casey, Hilmir Snær Guðnason og Íris Tanja Flygenring.

Glaðbeittir kúrekar

Verkið hefst á sjöunda áratug síðustu aldar þar sem leiðir kúrekanna Jack Twist og Ennis Del Mar liggja saman á fjalli sem heitir Brokeback í bíómyndinni en Fjallabak í íslensku útgáfunni. Venjulega er ég ekki viðkvæmur fyrir frumlegum þýðingum en ég skildi ekki þörfina á því þýða heitið á fjallinu á íslensku. Persónur verksins heita allar enskum nöfnum, Texas heitir Texas í leikritinu en af einhverjum ástæðum þarf Brokeback heita Fjallabak. Þetta var bæði óþjált (það var oft talað um hérna á þessu fjalli) og óþarfi.

Kúrekarnir tveir fella hugi saman meðan þeir vakta kindurnar á fjallinu og upplifa sanna hamingju. Þeir hafa báðir alist upp við fátækt og erfiðleika og vita þeir geta ekki opinberað kynhneigð sínaslíkt var dauðadómur í þessum hluta Bandaríkjanna á þessum tíma. Í einverunni á Brokeback-fjalli eru þeir hins vegar frjálsir, geta gert það sem þeir vilja og eiga aldrei eftir upplifa slíka hamingju aftur.

Fyrri hluti sögunnar var nokkuð vel útfærður og hentar í raun lang best fyrir leikrit þar sem fókusinn er á samskipti þeirra Jack (Björn Stefánsson) og Ennis (Hjörtur Jóhann Jónsson) og eina aukapersónan er yfirmaður þeirra sem er leikinn af Hilmi Snæ, sem bregður sér í ýmis hlutverk í sýningunni en virðist ekki leggja neitt sérstaklega mikið á sig í gæða hlutverkin lífi. Björn lék hlutverk Jack hins vegar af krafti og Hjörtur Jóhann var líka góður sem hinn þögli Ennis og stuttaraleg tilsvör hans voru vel tímasett.

Sum atriði virkuðu þó ekki alveg nægilega vel. Til dæmis fyrsta kynlífsreynsla þeirra félaga. Í kvikmyndinni er atriðið hispurslaust og óvænt hversu nærgöngult það er. Hérna er það falið inn í tjaldi sem virkaði klaufalega og fangaði ekki andann í upprunalegu smásögunni eða kvikmyndinni.

Tíminn líður

Í seinni hluta sögunnar fylgjumst við með baráttu þeirra við lifa lífinu í felum fyrir sínum nánustu. Þeir ganga báðir í hjónaband með konum og eignast börn en hamingjuna finna þeir aðeins í örmum hvor annars þegar þeir hittast í veiðiferðum á nokkurra ára fresti. Brokeback Mountain er tragísk ástarsaga þar sem tveir einstaklingar ekki lifa lífi sínu frjálsir heldur þurfa leyna tilfinningum sínum í ótta við útskúfun, smánun eða dauða.

Það fjölgar í persónugalleríinu þegar ár og áratugir líða. Slíkt er alltaf erfiðara í leikhúsi og er farin leið láta Írisi Tönju Flygenring leika Ölmu Beers, eiginkonu Ennis, auk þess sem Hilmir Snær og Esther Thalía Casey (sem er söngkona verksins) bregða sér í nokkur smærri hlutverk. Íris Tanja hafði ekki úr miklu moða og ég spyr mig hvort það hefði ekki verið einfaldara láta Esther leika öll kvenhlutverkin í sýningunni.

Uppsetningin reyndi láta allt vera eins raunverulegt og hægt var. Kannski af því það er verið setja upp kvikmynd. Sumt virkaði þó frekar hallærislegt. Eins og grátandi dúkkur eða upptökur af barnsgráti utan sviðs. Leikstjórinn Valur Freyr Einarsson hefði alveg mátt gefa sér meira frelsi í túlkun og uppsetningu í staðinn fyrir reyna hafa allt sem raunverulegast. Og ef allt átti vera raunverulegt var eitt sem klikkaði því aðalpersónurnar virðast ekkert eldast.

Það er eitt af því sem gerir kvikmyndina svo áhrifaríkamaður sér hvernig tíminn leikur þá Jack og Ennis. Hvernig líkami Ennis hrörnar undan erfiðsvinnu, útiveru og áfengisneyslu. Og hvernig Jack fer frá því vera grannur, ungur, kúreki sem leikur listir sínar á ródeó sýningum yfir í verða gamall maður sem fær aldrei sýna hver hann raunverulega er. Þessi umbreyting á þeim Jack og Ennis virkaði ekki í leikritinu og maður átti erfitt með átta sig á hversu langur tími átti vera liðinn frá sumrinu örlagaríka þegar þeir kynntust.

Dularfullur dauðdagi

Það sem snerti mig einna dýpst í Brokeback Mountain eru örlög Jack Twist. Í kvikmyndinni skeytir Ang Lee inn stuttu atriði sem gefur til kynna útskýring Laureen, eiginkonu Jacks, á slysinu sem hann lendir í ekki endilega sannleikanum samkvæm. Þetta litla atriði er ótrúlega mikilvægt því það tengist beint hryllilegri sögu sem Ennis segir fyrr í verkinu af því þegar pabbi hans sýnir honum lík af samkynhneigðum manni sem hefur verið misþyrmt og svo drepinn. Ennis veltir jafnvel fyrir sér hvort faðir hans hafi verið ábyrgur fyrir morðinu.

Við vitum Jack Twist hefur gefist upp á bíða eftir Ennis og hann storkar örlögunum með því leita til annarra karlmanna. Ennis veit hver eru örlög þeirra sem eru stimplaðir kynvillingar í suðurríkjunum og passar sig því lifa í felum. Mér fannst vanta vekja þessar spurningar upp hjá áhorfendum í samtalinu á milli Laureen og Ennis því í mínum huga er útilokað sagan um sprungna dekkið sönn.

Annað atriði undir lok verksins sem féll örlítið flatt var heimsókn Ennis á æskuheimili Jack. Þetta atriði er ótrúlega sorglegt í myndinni. Foreldrar Jacks eru sannkristnir og það sem maður tekur eftir á heimili þeirra er þar eru engar myndir, engin málverk og ekkert skraut. Nánast það eina sem er inn í gamla barnaherbergi Jack er lítill skemill sem hann sat á og horfði út um gluggann. Líkt og í kvikmyndinni finnur Ennis skyrtuna sem hann hafði verið í sumarið þeirra á Brokeback og sorgin hellist yfir hann.

Í leikritinu vantar hins vegar slagkraftinn í þetta atriði. Esther Thalía og Hilmir Snær leika foreldrana en ekki skapa sannfærandi mynd af sorg þeirra og angist á svo stuttum tíma. Og það vantar algjörlega sýna manni umhverfið, heimilið sem Jack þráði bæði flýja frá en líka snúa til baka með Ennis, gera upp, gera þeirra.

Þörf áminning

Brokeback Mountain, sem birtist upphaflega sem smásaga eftir Annie Proulx, er saga sem er mikilvæg hinsegin samfélaginu. Í pistli í leikskrá lýsir Felix Bergsson því hvernig birtingarmyndir samkynhneigðra í kvikmyndum á sjöunda og áttunda áratugnum voru oft annaðhvort skrípamyndir eða óhamingjusamir einstaklingar sem voru á skjön við hið hefðbundna. Á níunda áratugnum þegar alnæmisfaraldurinn skall á urðu sögurnar dýpri og Hollywood leikarar gátu leikið homma án þess það hefði neikvæð áhrif á feril þeirra.

Hins vegar hafi Brokeback Mountain brotið blað í sögum samkynhneigðra á hvíta tjaldinu. Við hommarnir trúðum ekki okkar eigin augum. Sagan er einföld en samt svo flókin ástarsaga, saga um ást í meinum, segir Felix í frábærum pistli sem lesa á heimasíðu Borgarleikhússins.

Mér finnst það spennandi hugmynd setja Brokeback Mountain upp sem leikrit og hef ekkert út á verkefnavalið setja. Það er líka vel gert hjá Borgarleikhúsinu gefa sögum samkynhneigðra vægi í verkefnavali sínu í ár en samkynhneigð kemur við sögu í verkunum Óskalandi, Ungfrú Ísland, Ketti á heitu blikkþaki og Fjallabaki.

Það er ekkert við aðalleikara sýningarinnar, þá Hjört og Björn, sakast. Þeir eru hugrakkir í nálgun sinni og stíga klárlega út fyrir þægindarammann. Þeir eiga hrós skilið. Hins vegar eru gallar á sýningunni, sérstaklega eftir hlé, þar sem atriði fara dragast á langinn og ég spyr mig hvort hefði ekki mátt stytta verkið og þétta. Mér sýnist West End uppfærslan hafa verið um 90 mínútur án hlés en þessi uppfærsla var rúmir tveir tímar.

Stærsti gallinn er þó þessi epíska ástarsaga náði aldrei fullum hæðum og maður hafði ekki nægilega samkennd með persónum verksins. Því miður er leikritið bara skugginn af kvikmyndinni sem maður óhjákvæmilega er alltaf með í höfðinu.

Niðurstaða

Fjallabak er áhugaverð tilraun til færa kvikmynd á leiksvið en það vantar skapa nægilega samkennd með persónum verksins til verkið snerti mann djúpt. Aðalleikararnir gera sitt besta en gallarnir skrifast einna helst á leikgerð sem hefði mátt einfalda og stytta.

Nafnalisti

  • Alma Beers
  • Ang Leeleikstjóri
  • Annie Proulxrithöfundur
  • Ashley Robinson
  • Axel Hallkell Jóhannessonleikmyndasmiður
  • Björn Stefánssonleikari
  • Brokeback Mountainkvikmynd
  • CrashÓskarsverðlaunamynd
  • Del Mar
  • Esther Talía Caseyleikkona
  • Esther Thalía Caseyleikkona
  • Felix Bergssonfararstjóri
  • Heath Ledgerleikari
  • Hilmir Snær Guðnasonleikari
  • Hjörtur Jóhann Jónssonleikari
  • Hollywoodskemmtistaður
  • Íris Tanja Flygenringleikkona
  • Jacksonur
  • Jack Twist
  • Jackstvíburi
  • Jake Gyllenhaalbandarískur leikari
  • Laureenstjarna
  • Ungfrú Íslandfegurðarsamkeppni
  • Valur Freyr Einarssonleikari
  • West Endskemmtistaðahverfi

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 1450 eindir í 76 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 56 málsgreinar eða 73,7%.
  • Margræðnistuðull var 1,61.