Björn Jón skrifar: Ærinn vandi nýs menntamálaráðherra

Eyjan

2025-03-23 17:00

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Það er bera í bakkafullan lækinn ræða hér afsögn menntamálaráðherrans, sem af kerskni er aðeins titlaður með orðskrípinu barnamálaráðherra, furðulegu embættisheiti sem tekið var upp í tíð hinnar fyrri lánlausu ríkisstjórnar. En meðan hvert axarskaft þingmanna og ráðherra Ingu Sæland hefur rekið annað eru hin mikilvægu úrlausnarefni látin reka á reiðanum. Raunar var það svo menntamálaráðherrann sem lét af embætti á ríkisráðsfundi fyrr í dag hugðist lítt aðhafast til koma á mikilvægum úrbótum í menntakerfinu. Til mynda hafði hann ekki hug á bæta aga í skólum og lagði þess í stað nýverið til hafðir yrðu tveir kennarar í hverjum bekk. Ráðherrann sýndi aukinheldur ekki áhuga á láta skólanemendur undirgangast próf á landsvísu svo hægt yrði mæla námsárangur.

koma öllum til sem mests þroska

Til koma á raunverulegum úrbótum verða ráðamenn hafa hugsjón um réttlátt þjóðskipulag. Aristóteles taldi réttlætið sem siðferðilega dyggð hafa það hlutverk dreifa gæðum og byrðum í samræmi við verðleika. Menn uppskæru eins og til væri sáð og réttur yrði hlutur þess sem beittur hefði verið órétti. Þýski heimspekingurinn Wilhelm von Humboldt tók undir þetta og sagði frumkröfu réttlætisins vera verðleikar mannsins fengju komið fram í sinni fjölbreytilegustu mynd. Æðsta markmið sérhvers siðmenntaðs samfélags væri allir þegnar þess kæmust til sem mests þroska.

Verkskipt nútímaþjóðfélag þarfnast lærdómsmanna á ótal sviðum þekkingar til hugar og handa, en námshæfni einstaklings ákvarðast af margfeldi greindarvísitölu hans og dugnaðar. Í skólum verða menn því viðfangsefni við hæfi og þar þarf ríkja slíkur agi menn keppi af öllu afli því hámarksárangri. Þetta er ekki hægt nema raða fólki niður á grundvelli áhugaen ekki síður getu og hæfni. Við lifum samt á tímum þar sem það virðist vera feimnismál ef sonur hjónanna í næsta húsi er greindari en eitthvert barnanna á okkar heimili.

Ég rakst í vikunni sem leið á nærri sjötíu ára gamla samnorræna tölfræði þar sem fram kom um fimm til átta af hundraði lykju stúdentsprófi á Norðurlöndunum. Rannsóknir í Danmörku bentu þó til fimmtungur hefði getu til ljúka stúdentsprófi en norskir fræðimenn töldu um líkt leyti tvöfalt fleiri hefðu þá getu. Sem betur fer voru skólarnir opnaðir fyrir fleirum, enda jókst þörf á sérmenntuðu fólki í akademískum greinum, en með tíð og tíma hafa námskröfur bersýnilega verið útþynntar verulega, tekið mið af hinni nálega sjötíu ára gömlu tölfræði.

Hvergi hvika

Menntahnignunin birtist til mynda í virðingarleysinu gagnvart móðurmálinu. Blaðamaður Morgunblaðsins ræddi á dögunum við Þuríði Kristjánsdóttur prófarkalesara til áratuga sem sagði umburðarlyndið í málfarinu taka út yfir allan þjófabálk. væri því þráfaldlega haldið fram engan mætti leiðrétta því það bryti viðkomandi niður andlega. En ef ekki mætti finna við neinn endaði það með því málfarið skildist ekki. Kennsla íslensku væri nákvæmnisvinna þar sem ekki mætti slaka á kröfum. Orð sönnu og þörf brýning.

Til merkis um það hvernig aðalatriði máls fara forgörðum í umræðu samtímans þá ritaði annar þeirra kandidata sem etur kappi um embætti rektors Háskóla Íslands grein, þar sem ekki var finna stafkrók um menntamálæðsta menntastofnun þjóðarinnar virtist bara ekkert hafa með menntun gera. Inntakið í ádrepu rektorsefnisins var jafnrétti og inngilding í fjölbreyttum háskóla. Hér er enn og aftur klifað á því fjölbreytni sérstök dyggð sem hún getur aldrei verið. Fjölbreytni er bara góð og slæm eftir atvikum og fjölbreytni í kennslustofunni getur hæglega spillt öllum lærdómsanda.

Þurfum miklu fleiri afburðarmenn

Ég minntist að framan á þekkingu yrði mæla með prófum, en þau einu samræmdu próf sem eru lögð fyrir íslenska skólanemendur eru haldin á vegum Efnahags- og framfarastofnunarinnar. Umrædd könnunarpróf leiða meðal annars í ljós stór hluti íslenskra nemenda er ólæs við lok fimmtán ára skólagöngu. Það veldur mér þó enn meira hugarangri þessar sömu kannanir sýna mun færri íslensk ungmenni afburðarhæfni en jafnaldrar þeirra í nálægum löndum. Þetta er sérlega háskalegt í því ljósi jafnfámennt þjóðfélag og okkar þarf hlutfallslega á mun fleiri afburðarmönnum halda en milljónaríkin.

Til eru slík ofurmenni þeim auðnast sinna skyldustörfum á sómasamlegan hátt en vinna í hjáverkum afrek sem lifa lengur en grafletur á grjóti. Við þekkjum úr okkar sögu slíka snillinga, menn eins og Bjarna Thorarensen sem var yngstur Íslendinga til ljúka stúdentsprófi, en hann orti kvæði sín í naumum næðisstundum frá embættisönnum. Þvílíka menn höfum við ekki eingöngu átt í hópi embættismanna heldur líka alþýðumanna sem ekki komust til mennta. Nefna Stephan G. Stephansson sem þrisvar braut land í nýja heiminum. Á andvökunóttum milli stritsins við búskapinn orti hann sín ódauðlegu kvæði.

Til æðstu embætta, svo sem ráðherrastarfa, ættu helst veljast slíkir afburðarmenn. Gagnrýnin á menntamálaráðherrann fyrrverandi hefur beinst breyskleika, en Íslendingar hafa um aldir getað fyrirgefið sínum bestu sonum margvíslegar misgjörðir og þannig á það líka vera.

Úrlausnarefnin í menntamálum eru brýn og fyrir það fyrsta þarf setja markmið um kunnátta íslenskra nemenda verði sambærileg við kunnáttu jafnaldra þeirra á hinum Norðurlöndunum og mætti til dæmis notast við próf þaðan, samræmd grunnskólapróf jafnt sem samræmd stúdentspróf. En hvernig sem á það er litið þá bíður nýs menntamálaráðherra ærinn vandi.

Nafnalisti

  • Aristótelesgrískur heimspekingur
  • Bjarni Thorarensenskáld
  • Inga Sælandformaður
  • Stephan G.skáld
  • Wilhelm von Humboldt
  • Þuríður Kristjánsdóttir

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 926 eindir í 43 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 40 málsgreinar eða 93,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,62.