Ræðir við Pútín á morgun

Ritstjórn mbl.is

2025-03-17 06:58

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Donald Trump Bandaríkjaforseti hyggst ræða við Vladimír Pútín Rússlandsforseta á morgun um hvernig megi binda endi á innrásarstríð Rússa í Úkraínu.

Við höfum lagt mikla vinnu [í friðarsamninga] um helgina. Við viljum sjá hvernig við getum stöðvað þetta stríð, segir forsetinn er hann ræddi við blaðamenn um borð í flugvél.

Trump segir viðræður um hvernig megi deila niður ákveðnum eignum á milli Rússlands og Úkraínu þegar hafnar.

Við munum tala um land. Við munum tala um orkuver.

Steve Witkoff, sem fer fyrir samninganefnd Bandaríkjamanna, ræddi við Pútín í síðustu viku.

Hann vildi ekki tjá sig um mögulega samninga varðandi yfirtöku Rússa á úkraínsku landsvæði. Rússar stjórna um það bil 20% af landi Úkraínu.

Lofaði binda enda á stríðið

Trump lofaði því ítrekað í kosningabaráttu sinni hann ætlaði binda enda á stríðið í Úkraínu sem hófst í febrúar árið 2022. Ætlaði hann gera það strax á fyrsta degi í embætti.

Skömmu eftir Trump var aftur tekinn við sæti forseta átti hann 90 mínútna langt símtal við rússneska starfsbróður sinn um hvernig mætti koma friði aftur á í Úkraínu.

Bandaríkin og Úkraína hafa bæði samþykkt bera undir Rússa samkomulag um 30 daga vopnahlé.

Erfiðar kröfur

Pútín hefur sagst styðja hugmyndina um vopnahlé en er þó með lista af erfiðum kröfum sem þarf uppfylla áður en hægt er slíkum friði.

Kreml sækist meðal annars eftir því í friðarsamningum komi staðfesting á því Úkraína muni ekki ganga í Atlantshafsbandalagið og ríkið verði áfram hlutlaust.

Við munum krefjast þess skotheldar öryggisábyrgðir verði hluti af þessu samkomulagi, segir Alexander Gruskho, varautanríkisráðherra Rússlands.

Nafnalisti

  • Alexander Gruskho
  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Steve Witkoff
  • Vladimír Pútínforseti

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 292 eindir í 18 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 17 málsgreinar eða 94,4%.
  • Margræðnistuðull var 1,68.