Í góðu lagi að aðkoma ráðuneytisins verði skoðuð

Ritstjórn mbl.is

2025-03-23 17:05

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir það vera í góðu lagi stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd taki til umfjöllunar hlutverk ráðuneytis hennar og mögulegt trúnaðarbrot þess gagnvart konu sem óskaði eftir einkafundi með Kristrúnu um mál Ásthildar Lóu Þórsdóttur.

Það er í góðu lagi þau taki þetta mál fyrir enda geta þau farið í þau mál sem þau telja mikilvæg, sagði Kristrún.

Deilt hefur verið um hvort það hafi verið trúnaðarbrot af hálfu ráðuneytisins gefa aðstoðarmanni Ásthildar upplýsingar um nafn og heimilisfang konu sem vildi einkafund með Kristrúnu til ræða mál Ásthildar.

Ásthildur sagði af sér sem ráðherra í kjölfar fréttaflutnings um hún hafi eignast barn með dreng sem var tæplega 17 ára þegar hún var á 23. aldursári.

Tekur á kveðja góðan kollega

Aðspurð kveðst Kristrún spennt til frekara samstarfs með Guðmundi Inga Kristinssyni sem tók við embætti mennta- og barnamálaráðherra í dag eftir Ásthildur Lóa sagði af sér á fimmtudagskvöld.

Segir Kristrún ekki gert ráð fyrir stefnubreytingu innan málaflokksins og segir unnið verði út frá sterkum stjórnarsáttmála.

Hefur þetta mál haft áhrif á stjórnarsamstarfið?

Þetta hefur auðvitað áhrif á okkur. Þetta er manneskja sem við unnum vel með og auðvitað tekur það á kveðja góðan kollega. En það er góð tilfinning inni í ríkisstjórninni.

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Guðmundur Ingi Kristinssonþingmaður Flokks fólksins
  • Kristrún Frostadóttirformaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 219 eindir í 11 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 11 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,84.