Ólöf og Ísleifur keyptu húsið af Kristínu
Ritstjórn Viðskiptablaðsins
2025-03-09 10:10
Upphafleg grein
Sæki samantekt...
Ólöf Jónsdóttir, framkvæmdastjóri einstaklingssviðs Íslandsbanka, og Ísleifur Orri Arnarson, forstöðumaður áhættustýringar hjá tryggingafélaginu VÍS, hafa gengið frá kaupum á 308 fermetra einbýlishúsi að Hringbraut 59 í Hafnarfirði. Kaupverð hússins nam 260 milljónum króna og nam fermetraverð því um 844 þúsund krónum.
Seljandi hússins er félagið KP Capital ehf., sem er í eigu Kristínar Pétursdóttur, varaformanns stjórnar Arion banka og fyrrverandi forstjóra Auðar Capital. Hún stofnaði Auði Capital ásamt Höllu Tómasdóttur sem nú er forseti Íslands.
Húsið, sem stendur á 1649,7 fermetra eignarlóð, var byggt árið 1959 og teiknað af Guðmundi Kr. Kristinssyni arkitekt. Samkvæmt fasteignaauglýsingu eru fjögur svefnherbergi og jafn mörg baðherbergi í húsinu.
Matthías Á Mathiesen fyrrum ráðherra bjó um áratugaskeið í húsinu og er húsið því stundum kallað Mathiesen húsið meðal rótgróinna Hafnfirðinga.
Hringbraut 59 stendur á 1649,7 fermetra eignarlóð.]] © Skjáskot (Skjáskot)
Nafnalisti
- Auður Capitalfjármálafyrirtæki
- Guðmundur Kr. Kristinssonarkitekt
- Halla Tómasdóttirfyrrverandi forsetaframbjóðandi
- Ísleifur Orri Arnarson
- Kristín Pétursdóttirleikkona og áhrifavaldur
- Matthías Á Mathiesen
- Ólöf Jónsdóttirframkvæmdastjóri Lykils
Svipaðar greinar
Tölfræði
- Textinn inniheldur 137 eindir í 9 málsgreinum.
- Það tókst að trjágreina 8 málsgreinar eða 88,9%.
- Margræðnistuðull var 1,64.