EfnahagsmálViðskipti

Aftur­hvarf til verndar­stefnu gæti reynt á við­náms­þrótt þjóðar­búsins og bankanna - Innherji

Hörður Ægisson

2025-03-26 09:14

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Seðlabankinn varar við því verndarstefna í alþjóðaviðskiptum muni meðal annars leiða til truflana á framboðskeðjum, sem geti haft neikvæð áhrif á fjárfestingu og efnahagsumsvif, og sömuleiðis valdið niðursveiflu á fjármálamörkuðum, mati fjármálastöðugaleikanefndar bankans. Líklegt er áhrifanna af slíkri sviðsmynd myndi gæta hér á landi, beint eða óbeint, og Seðlabankinn undirstrikar því mikilvægi þess huga viðnámsþrótti þjóðarbúsins.

Í yfirlýsingu sem fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans birti núna í morgun er sem fyrr sagt fjármálakerfið hér á landi standi traustum fótum.

Eiginfjár- og lausafjárstaða kerfislega mikilvægra banka er sterk og aðgengi markaðsfjármögnun er greitt. Hins vegar er óvissa mikil í alþjóðamálum sem gæti reynt á viðnámsþrótt þjóðarbúsins, því er fram kemur í yfirlýsingunni.]] Verndarstefna í alþjóðaviðskiptum leiðir til truflana á framboðskeðjum og aukins viðskipta- og framleiðslukostnaðar sem getur skekkt verðmyndun á mörkuðum og haft neikvæð áhrif á fjárfestingu og efnahagsumsvif. [[Þá er bætt við verðbólga og háir vextir-verðbólgan mælist núna 4,2 prósent en meginvextir Seðlabankans er komnir í 7,75 prósent-hafi skapað áskoranir fyrir heimili og fyrirtæki en efnahagsreikningar þeirra eru þó almennt sterkir. Skuldahlutföll séu jafnframt lág í sögulegum og alþjóðlegum samanburði og vanskil lítil. Þá er sparnaðarstig heimila hátt, stutt af aðhaldi þjóðhagsvarúðar- og peningastefnu.

Seðlabankinn gerir sérstaklega óbeint umtalsefni í yfirlýsingunni sinni hótanir Donalds Trump um setja á háa tolla gagnvart helstu viðskiptalöndum Bandaríkjanna. Þannig er bent á slík verndarstefna í alþjóðaviðskiptum muni leiða til truflana á framboðskeðjum og aukins viðskipta- og framleiðslukostnaðar sem geti skekkt verðmyndun á mörkuðum og haft neikvæð áhrif á fjárfestingu og efnahagsumsvif.

Það gæti jafnframt leitt til snarps viðsnúnings til hins verra á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Hætt er við áhrifin af slíkri framvindu næðu hingað til lands með beinum eða óbeinum hætti. Í þessu ljósi er mikilvægt viðhalda viðnámsþrótti fjármálakerfisins sem meðal annars felst í sterkri eiginfjárstöðu innlendra lánastofnana, segir í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar bankans.

Líkt og áður undirstrikar nefndin rekstraráhætta fjármálainnviða viðvarandi áskorun og brýnir fyrir rekstraraðilum mikilvægi viðbragðsáætlana um samfelldan rekstur þeirra. Nefndin undirstrikar einnig mikilvægi þess áfram unnið því auka rekstraröryggi í greiðslumiðlun og þar með komið verði á fót innlendri óháðri greiðslulausn. Samhliða verði unnið fleiri greiðsluleiðum til auka viðnámsþrótt.

Þá kemur fram í lok yfirlýsingarinnar fjármálastöðugleikanefndin hefði ákveðið halda gildi sveiflujöfnunaraukans óbreyttu í 2,5 prósent í samræmi við stefnu sína um beitingu aukans. Nefndin mun sem fyrr beita þeim stýritækjum sem hún hefur yfir ráða til varðveita fjármálastöðugleika þannig fjármálakerfið geti staðist áföll, miðlað lánsfé og greiðslum og dreift áhættu með viðhlítandi hætti.

Nafnalisti

  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 452 eindir í 19 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 16 málsgreinar eða 84,2%.
  • Margræðnistuðull var 1,55.