RÚV og Sunna Karen fá stuðning úr afar óvæntri átt - „Hávær hópur karlmanna yfir miðjum aldri hefur risið upp“

Ritstjórn DV

2025-03-28 17:30

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Fréttastofa RÚV hefur hlotið mikla gagnrýni fyrir fréttaflutning sinn af málefnum Ásthildar Lóu Þórsdóttur sem sagði af sér embætti mennta- og barnamálaráðherra eftir upp úr krafsinu kom hún hefði getið barn með 16 ára pilti þegar hún var sjálf komin yfir tvítugt. Viðskiptablaðið hefur verið afar gagnrýnið í gegnum tíðina á bæði vinnubrögð RÚV og tilveru þess yfirhöfuð en ekki í þetta sinn. Í sínum vikulega pistli um fjölmiðla kemur Örn Arnarson, ritstjórnarfulltrúi á Viðskiptablaðinu, fréttastofunni og Sunnu Karen Sigurþórsdóttir, sem vann fréttina, og flutti hana til varnar.

Örn skrifar:

Það sem er sérstaklega eftirtektarvert er hávær hópur karlmanna yfir miðjum aldri hefur risið upp og fordæmt vinnubrögð Sunnu Karenar Sigþórsdóttur og Ríkisútvarpsins. mörgu leyti minna þessi viðbrögð á stemninguna, sem ríkir á hægri kantinum í bandarískum stjórnmálum. Fjölmiðlar og fjölmiðlafólk er vandamálið. Það er sendiboðinn sem flækist fyrir valdamönnum.

Hið siðlega

Örn tekur ekki undir fréttastofan hafi unnið illa úr þeim upplýsingum sem hún hafði undir höndum og segir málið hafa átt fullt erindi við almenning:

Það er eðli málsins samvæmt óeðlilegt fullorðin kona eigi í kynferðislegu sambandi við dreng og það á erindi við almenning verði ráðherra barna- og menntamála uppvís slíku þó langt um liðið. Það varðar ekki hið löglega eða saknæma, eða þá, heldur einmitt hið siðlega og boðlega hjá fulltrúa almannavaldsins.

Eins og fram hefur komið braut Ásthildur Lóa engin lög sem voru í gildi með sambandi sínu við unga manninn, fyrir hartnær fjórum, áratugum, en Örn telur gera eigi meiri kröfur til ráðherra en þeir fari bara eftir lögum. Hið löglega algert lágmark í samfélagi manna fara eigi eftir hinu siðlega líka.

Örn minnir á ákvörðun um afsögn Ásthildar Lóu hafi verið tekin áður en fyrsta frétt RÚV af málinu fór í loftið. Hann gagnrýnir Ólaf Þ. Harðarson prófessor emeritus í stjórnmálafræði fyrir segja ásakanirnar á hendur Ásthildi Lóu væru tilhæfulausar og þær myndu ekki hafa nein áhrif á stjórnarsamstarfið:

Fjölmiðlarýnir hlakkar til lesa um vísindalega úttekt á því máli í næsta tölublaði Ritsinstímariti Hugvísindastofnunarþar sem færðar eru sönnur á fjögurra klukkustunda neyðarfundur leiðtoga í stjórnarsamstarfi sem endar með því ráðherra, sem var einn af sigurvegurum síðustu kosninga, segir af sér, ekki til marks um neitt sérstakt og hafi engin áhrif.

Ógeðfellt

Fleiri hljóta gagnrýni frá Erni fyrir gera lítið úr gjörðum Ásthildar Lóu og gagnrýna á móti fréttastofu RÚV:

Út af þessu ógeðfellda máli öllu og pólitískum öngum þess, virðist allt í einu vera orðin hin óvænta meginstraumsskoðun hjá vænum hópi fólks, jafnvel vænsta fólks, normalísera kynferðissamband fullorðinna við táninga. Verji hið óverjandi. Fyrir því eru þrjár skýringar helstar nefndar: miðöldum hafi ekki lokið fyrr en 1990, skrímslastofa Valhallar stjórni RÚV eða Ásthildur Lóa Þórsdóttir framúrskarandi stjórnmálamaður. Vandinn er , jafnvel þó allt væri þetta satt, þá leiðir það ekki af sér sjálfsagt eða ekki í frásögur færandi, fullorðið fólk liggi með táningum, hvorki 1989. Hvað þá fólk sem hefur helgað sig köllun til barnauppfræðslu.

Segir Örn lokum málið allt einkennast af siðspillingu hjá þeim sem verji Ásthildi Lóu og gagnrýni RÚV vegna málsins.

Nafnalisti

  • Ásthildur Lóa Þórsdóttirformaður Hagsmunasamtaka heimilanna
  • Ólafur Þ. Harðarsonfyrrverandi prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands
  • Örn ArnarsonSérfræðingur
  • Sunna Karen
  • Sunna Karen Sigþórsdóttirfréttamaður

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 569 eindir í 25 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 15 málsgreinar eða 60,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,67.