Fyrrum þingmaður repúblikana hvetur Trump til að handtaka sig og standa við stóru orðin - „Hættu að þykjast vera hörkutól“

Pressan

2025-03-20 10:39

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Fyrrum þingmaður repúblikana Adam Kinzinger hefur skorað á forsetann, Donald Trump, handtaka sig. Kinzinger sat í rannsóknarnefnd sem var falið rannsaka áhlaupið á bandaríska þinghúsið þann 6. janúar 2021. Þar reyndu stuðningsmenn Trump koma í veg fyrir þingið staðfesti Joe Biden væri réttkjörinn forseti. Aðeins tveir repúblikanar sátu í nefndinni. Biden óttaðist Trump ætlaði sér niður á þeim aðilum sem rannsökuðu áhlaupið svo hann veitti nefndarmönnum náðun í forvarnarskyni áður en hann lét af embætti.

Trump hefur fullyrt þessar náðanir séu ógildar þar sem Biden undirritaði þær ekki sjálfur heldur notaði sjálfvirka undirritunarvél, svokallaða autopen. Um er ræða vél sem notar raunverulegan penna og skrifar undir skjöl með rithönd forsetans.

Kinzinger mætti í viðtal hjá CNN á mánudaginn þar sem hann skoraði á forsetann reyna ákæra sig. Fyrir það fyrsta er ég reyna átta mig á hverju hann er reyna beina sjónunum frá, því þannig gengur þetta-það er alltaf einhver truflun í gangi til fanga athygli fólks. Kannski finnst honum hann ekki hafa fengið næga athygli. En sko, ég segi bara láttu vaða.

Kinzinger segir það deginum ljósara hvað átti sér stað þann 6. janúar 2021. Rannsóknarnefndin hafi leitt það allt í ljós. Það þó ein manneskja sem geti ekki sætt sig við þessa niðurstöðu því hún kemur sér illa fyrir hannDonald Trump. Það voru stuðningsmenn Trump sem tóku þátt í áhlaupinu og Trump hvatti þá áfram.

Hann bara getur ekki horfst í augu við þetta. Hann er með þetta á heilanum, sagði Kinzinger. Viðbrögð mín við þessu eru bara, veistu hvað? Láttu vaða. Hættu tala um þetta. Hættu vera bara í orði en ekki á borði. Hættu þykjast vera hörkutól. Hentu í þessar ákærur ef þú virkilega vilt því við munum rústa þér inni i dómsal.

Kinzinger, þrátt fyrir vera repúblikani, er enginn aðdáandi Trump. Hann gekk meira að segja svo langt styðja opinberlega við framboð demókratans Kamala Harris í forsetakosningunum, ekki því hann hafði sérstaka trú á henni heldur því hann vildi ekki sjá Trump aftur í Hvíta húsinu. Hann fór mikinn í september og sagði Trump vera aumingja sem þykist vera sterkur leiðtogi.

Donald Trump er aumur maður sem þykist vera sterkur. Hann er lítilmenni sem þykist stór. Hann er trúleysingi sem þykist vera trúfastur. Hann er gerandi sem getur ekki hætt leika fórnarlamb.

Eins furðaði Kinzinger sig á því enginn væri tala um hversu vond lykt er af forsetanum. Hann lýsti lyktinni sem blöndu af handakrika, tómatsósu, farða og rassgati.

Independent greinir frá

Nafnalisti

  • Adam Kinzingerþingmaður Repúblikana
  • Donald Trumpþáverandi forseti Bandaríkjanna
  • Independentbreskur miðill
  • Joe Bidenfyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna
  • Kamala Harrisvaraforseti Bandaríkjanna

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 479 eindir í 33 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 27 málsgreinar eða 81,8%.
  • Margræðnistuðull var 1,66.