Fleiri en 700 látnir eftir jarðskjálfta í Mjanmar og Taílandi

Hugrún Hannesdóttir Diego

2025-03-29 04:01

Upphafleg grein

0%

Sæki samantekt...

Rúmlega 700 eru látnir eftir snarpan jarðskjálfta sem reið yfir Mjanmar og Taíland í gærmorgun og fleiri en 1.600 eru slasaðir. Stjórnvöld í Mjanmar sögðu frá því í nótt 694 hefðu fundist látnir í og við borgina Mandalay. Að minnsta kosti tíu hafa fundist látnir í Taílandi. Yfirvöld í ríkjunum segja til viðbótar séu 1.670 slasaðir í Mjanmar og sextán í Taílandi.

Jarðvísindastofnun Bandaríkjanna áætlar þúsundir gætu hafa farist miðað við styrk skjálftans.

Áhrif jarðskjálftans voru hve mest í Mandalay þar sem fjöldi bygginga er rústir einar. Rafmagn og fjarskiptakerfi liggja einnig niðri í bæði Mandalay og borginni Yangon. Mandalay er næst stærsta borg Mjanmar og liggur um miðbik landsins. Yangon er stærsta borg landsins. Hún er í sunnanverðu Mjanmar, í um 600 kílómetra fjarlægð frá Mandalay.

Skjálftinn var 7,7 stærð og honum fylgdi eftirskjálfti af stærðinni 6,4. Skjálftinn fannst einnig á Indlandi.

Búist er við því leit og björgun standi dögum saman. Um hundrað er leitað í rústum þriggja mannvirkja sem voru enn í byggingu í Bangkok, höfuðborg Taílands.

Herstjórn Mjanmar óskaði eftir alþjóðlegri aðstoð, sem er afar fátítt. Bandaríkin, Kína, Indland, Evrópusambandið og ASEAN, bandalag Suðaustur-Asíuríkja, hafa heitið stuðningi.

Nafnalisti

  • ASEANSamband Suðaustur-Asíuríkja
  • Mandalayborg
  • Yangonborg

Svipaðar greinar

Tölfræði

  • Textinn inniheldur 217 eindir í 16 málsgreinum.
  • Það tókst að trjágreina 16 málsgreinar eða 100,0%.
  • Margræðnistuðull var 1,83.